

Getur þú tekið vaktina í sumar í Lyfju Hafnarstræti?
Við leitum að sjálfstæðum og skipulögðum starfsmanni með ríka þjónustulund í sölu- og afgreiðslustarf í sumar í Lyfju Hafnarstræti.
Starfið felst í ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum, afgreiðslu á kassa, afhendingu lyfja gegn lyfseðli, afgreiðslu á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra.
Helstu verkefni
• Almenn afgreiðslustörf
• Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
• Afgreiðsla á kassa
• Afhending lyfja gegn lyfseðli
• Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra
Hæfniskröfur
• Rík þjónustulund
• Áhugi á mannlegum samskiptum
• Jákvæðni og gott viðmót
• Geta til að starfa undir álagi
• Reynsla af verslunarstörfum er æskileg
• Reynsla af störfum í apóteki er kostur
• Allir umsækjendur þurfa að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og vera að minnsta kosti 20 ára.
Vinnutími 9-18 virka daga og annan hvern laugardag frá 11-16
Nánari upplýsingar gefur Alfreð Ómar Ísaksson, lyfsali Lyfju Hafnastræti í síma 693-2211 eða í gegnum netfangið [email protected]
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.













