Byko
Byko
Byko

Hlutastarf í gólfefnadeild - Byko Breidd

Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til að starfa í hlutastarfi hjá okkur í gólfefnadeild í BYKO Breidd.

Starfið hentar mjög vel með skóla og kjörið fyrir þau sem eru að læra iðngreinar.

Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Vinnutími: Önnur hver helgi, laugaradaga frá 11-18 og sunnudaga frá 11-17. Einn virkur dagur í viku frá 15-18:30.

Við leitum að starfsmanni með:

  • Reynslu af afgreiðslustörfum, skilyrði
  • Þekking og reynsla af parketi, flísum o.s.frv.
  • Þekking og reynsla af múrefni, kostur
  • Ríka þjónustulund
  • Nákvæm vinnubrögð
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhuga á verslun og þjónustu
  • Íslenskukunnáttu

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Afgreiðsla, sala og ráðgjöf til viðskiptavina
  • Önnur tilfallandi verkefni

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

Umsóknarfrestur er til og með 23. mars en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.

Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Arnar Steinn Þorsteinsson, ([email protected]) svæðisstjóri endurbæta.

Auglýsing birt18. mars 2025
Umsóknarfrestur23. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skemmuvegur 4, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar