Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfja Nýbýlavegi- sala og þjónusta, framtíðarstarf

Viltu taka vaktina í Lyfju á Nýbýlavegi ?

Við leitum að sjálfstæðum og skipulögðum starfsmanni með ríka þjónustulund í sölu- og afgreiðslustarf í framtíðarstarf í Lyfju á Nýbýlavegi. Starfið felst í ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum, afgreiðslu á kassa, afhendingu lyfja gegn lyfseðli, afgreiðslu á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra.

Helstu verkefni:

  • Almenn afgreiðslustörf
  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Afgreiðsla á kassa
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli
  • Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra

Hæfniskröfur:

  • Rík Þjónustulund
  • Áhugi á mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og gott viðmót
  • Geta til að starfa undir álagi
  • Reynsla af verslunarstörfum er kostur
  • Reynsla af störfum í apóteki er kostur

Vinnutími er frá 12 -18:30 og þriðja hvern laugardag frá 11-16 og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Íslensku kunnátta er skilyrði og viðkomandi þarf að vera að minnsta kosti 20 ára.

Nánari upplýsingar veitir Thelma Ögn Sveinsdóttir, lyfsali Lyfju Nýbýlavegi í s: 527 2755 | [email protected]

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt18. mars 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hagasmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar