Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Gæða- og skjalastjóri hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (LRH) leitar eftir metnaðarfullum og framsýnum leiðtoga í stöðu Gæða- og skjalastjóra. Um er að ræða spennandi, krefjandi og fjölbreytt starf sem heyrir undir Þjónustudeild embættisins.

Þjónustudeild sinnir stoð- og þjónustuhlutverkum fyrir bæði almenning og aðra hluta lögreglu. Deildin starfrækir m.a. ritaraþjónustu, skýrsluþjónustu, sektarþjónustu, þjónustuborð og munavörslu. Deildin hefur nýlega flutt í nýtt sameinað rými sem hefur skapað líflegt vinnuumhverfi þar sem teymisandi er í forgrunni. Jafnframt er verið að innleiða nýtt þjónustukerfi og kortleggja þjónustuferla með einföldun og skilvirkni að leiðarljósi.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 450 á fjórum megin starfsstöðvum.

Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á gæða- og skjalastjórnun embættisins og mótun stefnu á þeim sviðum, með áherslu á stafræna vegferð.

  • Samhæfing á gæðastarfi LRH og yfirsýn yfir hin ýmsu verkefni því tengdu.

  • Stýring og viðhald á gæðaskjölum á rafrænu gæðatorgi embættisins.

  • Eftirfylgni við skjalastefnu og mótun verklags við skjalastjórnun.

  • Stýring og þróun skjalakerfi LRH.

  • Ráðgjöf og stuðningur við verkefni starfsfólks á sviði gæða- og skjalamála.

  • Umsjón fræðslu og leiðbeininga í gæðamálum og skjalastjórnun fyrir starfsfólk LRH.

  • Umsjón með samskiptum LRH við Þjóðskjalasafn Íslands og aðra hagaðila.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Reynsla og þekking á gæðastjórnun og skjalastjórnun

  • Reynsla af innleiðingu rafrænnar skjalavistunar og stafrænum umbreytingaverkefnum

  • Þekking á skjalastjórnunarkerfi s.s GoPro

  • Þekking á opinberri stjórnsýslu og meðferð stjórnsýsluerinda

  • Reynsla af breytingastjórnun og fræðslu fyrir starfshópa

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund

  • Frumkvæði, sveigjanleiki og gott álagsþol

  • Skipulögð, vönduð og nákvæm vinnubrögð

  • Jákvætt og lausnamiðað viðhorf og sterk stafræn sýn

  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti

Þess er vænst að umsækjendur hafi reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika og færni.

Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum.

Auglýsing birt24. apríl 2026
Umsóknarfrestur4. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hverfisgata 113-115 115R, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar