Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja

Ráðgjafi í heilsu-, öryggis- og umhverfismálum

Ráðgjafi í heilsu-, öryggis- og umhverfismálum

Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum ráðgjafa í heilsu-, öryggis- og umhverfismálum (HSE) til starfa hjá Inchcape á Íslandi. Þetta er einstakt tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif í kraftmiklu, alþjóðlegu umhverfi.

Askja, Dekkjahöllin, Landfari og Bílaumboðið Una eru dótturfélög Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllinni í London. Inchcape er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði, starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims.

Um er að ræða mikilvægt hlutverk þar sem unnið er náið með stjórnendum og starfsfólki á vettvangi við innleiðingu og þróun alþjóðlegs heilsu- og öryggis stjórnunarkerfis , efla ábyrgð rekstrareininga á heilsu- og öryggismálum og vinna í nánu samstarfi við alþjóðlegt fagteymi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Styðja við innleiðingu, viðhald og þróun á heilsu- og öryggisstefnu, verklag og stjórnunarkerfi
  • Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk  með það að markmiði að efla öryggismenningu
  • Þjálfun og fræðsla um öryggismál
  • Stuðningur við rannsókn á slysum og atvikum og innleiðing varanlegra úrbóta
  • Þátttaka í áhættumati, úttektum og eftirfylgni
  • Halda utan um og miðla upplýsingum um lykilmælikvarða á sviði heilsu- og öryggismála
  • Tryggja að starfsemin uppfylli lög, reglur og viðeigandi staðla.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði vinnuverndar, umhverfismála eða skyldra greina
  • Að  lágmarki tveggja ára reynsla af verkefnum tengdum heilsu og öryggi  eða vinnuvernd.
  • Góð samskiptafærni og hæfni til leiðbeina og styðja stjórnendur og starfsfólk í breytingum
  • Góð greiningarhæfni og geta til að vinna með gögn og miðla niðurstöðum á skýran hátt
  • Þekking á heilsu- og öryggisstjórnunarkerfum og ISO 45001 eða ISO 14001 er kostur
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi

Af hverju Inchcape Ísland?

  • Fjölskylduvænn vinnustaður
  • Samkeppnishæf kjör og góð fríðindi
  • Sterk liðsheild og alþjóðlegt starfsumhverfi
  • Áhersla er á velferð og vellíðan starfsfólks
  • Allt starfsfólk er líftryggt
Auglýsing birt13. apríl 2026
Umsóknarfrestur26. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Krókháls 11, 113 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar