
Lyfjastofnun
Hlutverk Lyfjastofnunar er að tryggja öryggi landsmanna með greiðu aðgengi að lyfjum og lækningatækjum, faglegri þjónustu og hlutlausri upplýsingagjöf byggðri á nýjustu þekkingu. Lyfjastofnun heyrir undir heilbrigðisráðuneytið og sér um að gefa út markaðsleyfi fyrir lyf á Íslandi í samvinnu við lyfjayfirvöld á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa eftirlit með lyfjafyrirtækjum og heilbrigðisstofnunum á Íslandi, meta gæði og öryggi lyfja og tryggja faglega upplýsingagjöf um lyf til heilbrigðisstarfsfólks og neytenda. Hjá Lyfjastofnun vinna um 70 starfsmenn. Lyfjastofnun starfar eftir mannauðsstefnu sem miðar að því að hafa helgað starfsfólk, rétt fólk á réttum stað og að vera eftirsóknarverður vinnustaður. Gildi Lyfjastofnunar eru gæði – traust – þjónusta.
Sumarstarf - Gæðaritari
Við leitum að skipulögðum og nákvæmum sumarstarfsmanni til að taka þátt í mikilvægu verkefni við uppfærslu og samræmingu gæðaskjala í stjórnkerfi stofnunarinnar. Starfið hentar sérstaklega vel fyrir háskólanema eða einstakling sem hefur áhuga á skipulagi, ferlum, textagerð og gæðamálum.
Í starfinu munt þú vinna með gæða- og öryggisstjóra og öðrum starfsmönnum að því að einfalda, bæta og samræma skjöl þannig að þau verði skýr, aðgengileg og notendavæn.
Samið verður um starfstímabil við ráðningu en miðað er við að það falli innan tímabilsins 1. maí til 31. ágúst 2026.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fara yfir og uppfæra núverandi gæðaskjöl
- Aðstoða við að samræma framsetningu og uppsetningu skjala
- Skrásetja og móta skjöl fyrir ferla sem vantar skráningu
- Vinna með ferlaeigendum að því að skýra og einfalda verklýsingar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólanám sem nýtist í starfi, t.d. á sviði stjórnsýslu, viðskipta, verkfræði, upplýsingafræði eða sambærilegu sviði, er kostur
- Gott vald á íslensku og hæfni til skýrrar og vandaðrar textasetningar
- Góð almenn tölvukunnátta og færni í Microsoft 365
- Skipulagshæfni, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni til að greina upplýsingar og setja fram á skýran og hnitmiðaðan hátt
- Áhugi á ferlum, skipulagi og umbótastarfi er mikilvægur kostur
Auglýsing birt14. apríl 2026
Umsóknarfrestur24. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Vínlandsleið 14
Starfstegund
Hæfni
SkipulagTextagerðUmsýsla gæðakerfa
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (10)

Ráðgjafi í heilsu-, öryggis- og umhverfismálum
Bílaumboðið Askja

Specialist Tech OPS Control Operations
Alvotech hf

Viltu þú taka þátt í að tryggja flugöryggi?
Avians

Gæðastjóri
Norðurorka hf.

Sumarstarf í þjónustuveri á Akranesi
Ritari

Gæðafulltrúi
Skólamatur

Þjónustufulltrúi
Fura ehf.

Sérfræðingur í gæðamálum – ISO 9001
HSE Consulting

Viltu vera á skrá? Ritara- og skrifstofustörf
Landspítali

Viltu vera á skrá? Býtibúr
Landspítali