
Skólamatur
Skólamatur ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og framreiðslu á hollum og ferskum mat, elduðum frá grunni fyrir leik- og grunnskóla.
Skólamatur ehf. var stofnað í janúar 2007. Fyrirtækið er í eigu Axels Jónssonar matreiðslumeistara sem hefur áratuga reynslu af alhliða veitingarekstri.
Hjá Skólamat starfa um 200 starfsmenn. Starfsmannavelta fyrirtækisins er lág og starfsaldur hár. Rúmlega helmingur núverandi starfsmanna hefur unnið í 5 ár eða lengur hjá fyrirtækinu.
Skólamatur leggur áherslu á að skapa fjölskylduvænt vinnuumhverfi þar sem hæfileikar, þekking og reynsla hvers starfsmanns fær að njóta sín. Við leggjum áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.
Markmið Skólamatar er að ráða, efla og halda hæfu og reynslumiklu starfsfólki.
Gildi Skólamatar eru: Jákvæðni, fjölskylda og virðing.

Gæðafulltrúi
Starfið felst í faglegu eftirliti og kennslu í leik- og grunnskólum fyrirtækisins með sérstaka áherslu á meðhöndlun, eldun og framsetningu á mat.
Gæðafulltrúi sinnir gæðamálum og fylgir eftir ábendingum og athugasemdum í samráði við gæðastjóra.
Gæðafulltrúi sér um þjálfun og skráningu nýliða og starfsfólks mötuneyta leik- og grunnskóla.
Gæðafulltrúi er tengiliður gæðastjóra og yfirmatreiðslumanns á útstöðvum.
Einnig sinnir starfsmaður eftirliti með þrifum og réttri þrifaskráningu.
Um er að ræða tímabundið starf til 4.júní 2027.
Vinnutími er frá 7:30-15:30, mánudaga til föstudaga.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með faglegu eftirliti í leik og grunnskólum
- Eftirfylgni með heilbrigðisskýrslum
- Innleiðing á verklagi við matreiðslu í leik og grunnskólum
- Eftirlit á þrifum og skráningum þrifa
- Eftirfylgni með nýliðaþjálfun og skráningar
- Fræðsla og þjálfun
- Umsjón og ábyrgð með meðlætisbar og skráning
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í matvælagreinum er skilyrði
- Áhugi á gæðamálum og matvælaframreiðslu
- Skipulagshæfni, frumkvæði og færni í mannlegum samskiptum
- Reynsla af verkstjórn eða teymisvinnu kostur
- Gott vald á íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
- Íþróttastyrkur
- Samgöngustyrkur
- Fjölskylduvænn vinnustaður
Auglýsing birt30. mars 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Matreiðslumaður
Ráðlagður Dagskammtur

Gæðastjóri
Norðurorka hf.

Yfirmatráður á Bergi í Bolungarvík
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Viltu þú taka þátt í að tryggja flugöryggi?
Avians

Commis Chef / Kokkur
The Reykjavik EDITION

Aðstoðar matráður/skólaliði óskast í Brúarásskóla
Brúarásskóli

Kvöld og helgarvinna / Evening / weekend
Ginger

Cook
Arctic Adventures

Réttarholtsskóli – Yfirmaður mötuneytis
Réttarholtsskóli

Rekstraraðili óskast fyrir mötuneyti Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri
Landbúnaðarháskóli Íslands

Umsjónarmaður morgunverðar
Aurora Hotel

Matreiðslumaður/chef
Landnámssetur Íslands