
Vegagerðin
Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Um 350 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Sumarstarf í skjalateymi Vegagerðarinnar
Við leitum að metnaðarfullum og skipulögðum sumarstarfsmanni til að taka þátt í verkefni sem snýr að stafrænni umbreytingu gagna.
Starfið felur í sér úrvinnslu og stafræna skráningu pappírsgagna sem nú eru skráð í Lotus Notes. Verkefnið er hluti af stærra umbótaverkefni þar sem unnið er að því að draga úr pappírsnotkun og færa gögn yfir í rafrænt form.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fara yfir og vinna úr pappírsskýrslum.
- Skanna skjöl og tryggja gæði stafrænnar útgáfu.
- Skrá og flokka gögn í viðeigandi kerfi.
- Vista skjöl í rafrænu skjalageymslukerfi.
- Undirbúa gögn fyrir afhendingu til Þjóðskjalasafns Íslands eftir skönnun.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð almenn tölvukunnátta
- Nákvæmni og skipulagshæfni
- Sjálfstæð vinnubrögð og ábyrgð í starfi
- Reynsla af skjalastjórnun eða gagnavinnslu er kostur
Auglýsing birt22. apríl 2026
Umsóknarfrestur4. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
