brandr ehf
brandr ehf

Full-stack forritari (framendamiðaður)

Við leitum að drífandi full-stack forritara með áherslu á framenda, sem brennur fyrir framúrskarandi UI/UX, hefur sterka leiðtogahæfni og er tilbúinn að taka þátt í spennandi vegferð í metnaðarfullu start-up fyrirtæki. Þetta er einstakt tækifæri til að verða lykilstarfsmaður á fyrstu stigum verkefnis og hafa mikil áhrif á þróun fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hanna og þróa notendavænar og skilvirkar framendalausnir í samstarfi við teymi.

  • Samþætta framenda og bakenda með áherslu á stöðugleika, afköst og öryggi.

  • Vinna náið með hönnuðum og öðrum forriturum að því að hámarka notendaupplifun.

  • Byggja upp og viðhalda kerfum í skýjalausnum með áherslu á AWS.

  • Leiða verkefni frá hugmynd til framkvæmdar og hafa áhrif á stefnumótun og þróun lausna.

  • Taka þátt í nýsköpun og innleiðingu nýrra tækni- og gervigreindarlausna.

 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • BSc/MSc í tölvunarfræði eða sambærileg menntun.

  • 5+ ára starfsreynsla sem forritari, með áherslu á framendaþróun (t.d. Vue.js eða React).

  • Þekking á og reynsla af Python/Django og bakendakerfum.

  • Reynsla af Postgres og PL/SQL gagnagrunnum.

  • Þekking á og reynsla af gervigreindarlausnum er mikill kostur.

  • Reynsla af skýjalausnum, sérstaklega AWS, er skilyrði.

  • Leiðtogahæfni, með getu til að hafa áhrif og stýra verkefnum í litlu teymi.

  • Brennandi áhugi á nýjustu tækni, ásamt sjálfstæðum og lausnamiðuðum vinnubrögðum.

 

Fríðindi í starfi
  • Tækifæri til að vera hluti af fjármögnuðu start-up á fyrstu stigum, með mikil áhrif á stefnu og árangur.

  • Sveigjanleg vinnuskilyrði, möguleika á fjarvinnu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

  • Samkeppnishæf laun

  • Tækifæri til að þróa eigin hæfni og verða leiðandi í tæknilausnum fyrirtækisins.

 

Auglýsing birt3. febrúar 2025
Umsóknarfrestur17. febrúar 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 25, 105 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar