
Björgun-Sement
Árið 2025 sameinuðust Björgun og Sementsverksmiðjan undir einu nafni: Björgun-Sement, en rætur fyrirtækjanna ná aftur til ársins 1952.
Björgun-Sement framleiðir hágæða steinefni úr námum á sjó og landi og flytur inn sement fyrir íslenskan byggingariðnað. Fyrirtækið sinnir einnig hafnardýpkunum og dælingu á sjávarefnum ásamt því að starfrækja námuvinnslu.
Starfsemin felur í sér:
• Framleiðslu, öflun og afhendingu hágæða steinefna úr námum.
• Innflutning og dreifingu á sementi frá Heidelberg Materials í Noregi.
• Dýpkunarframkvæmdir og efnistöku úr sjó með sérútbúnum dæluskipum.
• Námuvinnslu og afhendingu steinefna fyrir mannvirkjagerð um allt land.
• Hafnarþjónustu með margvíslegri lestun og losun hráefna.
Björgun-Sement byggir starfsemina á hringrásarhugsun, ábyrgri auðlindanýtingu og ströngum gæðaviðmiðum. Steinefni fyrir steinsteypu og malbik eru CE-vottuð og bæði sement og stór hluti steinefna eru með með vottaðar umhverfisyfirlýsingar (EPD). Þá hefur sementsbirgirinn Heidelberg Materials byggt kolefnisföngunarstöð sem dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda um allt að 400.000 tonn CO₂ á ári sem gerir að verkum að sementið fæst með mun minna kolefnisspori en áður.
Innflutningur sements, sem fer í gegnum starfsstöðina á Akranesi, hefur haft vottað gæðastjórnunarkerfi ISO 9001 frá árinu 1998 ásamt því að vera með vottað heilsu- og öryggiskerfi ISO 45001 og umhverfisvottun ISO 14001. Aðrar einingar fyrirtækisins starfa án formlegrar ISO-vottunar en með sama metnað að leiðarljósi.
Með ströngum gæðaviðmiðum, vottuðum umhverfisyfirlýsingum, lágmörkun kolefnisspors og vottuðu stjórnkerfi tryggir Björgun-Sement áreiðanleg steinefni og sement fyrir sjálfbærari mannvirki framtíðarinnar.
Björgun-Sement hefur verið dótturfélag Eignarhaldsfélagsins Hornsteins frá árinu 2010 en jafnframt starfrækir Hornsteinn fyrirtækið BM Vallá. Um 200 starfsmenn vinna að verkefnum fyrirtækisins víða um land, þar sem markmiðið er að gera íslenska mannvirkjagerð vistvænni.

Rekstrar- og tæknistjóri
Rekstrar- og tæknistjóri sér um uppbyggingu og rekstur starfsstöðva (efnisvinnsla, verkstæði og útgerð), sinnir rekstrartengdum verkefnum og framleiðslu. Hann vinnur markvisst í uppbyggingu, þróun og nýsköpun fyrirtækisins og ber ábyrgð á því að ná settum framleiðslu-, gæða- og umhverfismarkmiðum.
Rekstrar- og tæknistjóri ber ábyrgð á birgðahaldi og birgðastýringu og annast samskipti við birgja varðandi samninga, pantanir og afgreiðslu. Hann ber ábyrgð á að framleiðsla og meðhöndlun vöru sé samkvæmt verkferlum, að framleiðslutækjum sé rétt við haldið og öryggiskröfum sé fylgt.
Rekstrar- og tæknistjóri er staðgengill framkvæmdastjóra.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
Brennandi áhugi á framleiðsluferlum, skilvirkni og hámörkun á nýtni
Þekking/reynsla af gæðakerfum er æskileg
Mjög góð tölvukunnátta
Frumkvæði, metnaður og sjálfstæð vinnubrögð
Helstu verkefni og ábyrgð
Rekstur, uppbygging og stjórnun starfsstöðva
Umsjón með viðhaldi og endurbótum tækja og búnaðar
Geining nýrra viðskiptatækifæra og þátttaka í vöruþróun
Samskipti við viðskiptavini, sala, útboðs- og samningagerð
Uppbygging, þróun og nýsköpun
Auglýsing birt8. júní 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Völuteigur 7-11 7R, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
BirgðahaldFrumkvæðiInnleiðing ferlaJákvæðniLeiðtogahæfniMetnaðurSamningagerðStarfsmannahald
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Tæknisérfræðingur
Korda

Commissioning Manager
atNorth

Sérfræðingur í innkaupum
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Project Director
atNorth

Fagstjóri fasteigna
Grundarheimilin

Framleiðslustjóri
Í einum grænum ehf

TDK Foil Iceland ehf óskar eftir að ráða Rafmagnsverkfræðing
TDK Foil Iceland ehf

Rekstarstjóri Húsasmiðjunnar og Blómavals í Skútuvogi
Húsasmiðjan

Sérfræðingur í hönnunarstýringu búnaðar
Veitur

Sérfræðingur í hönnunarstýringu dreifikerfis
Veitur

Notendaþjónusta - Internal support
Icelandair

Forstöðumaður umferðardeildar
Vegagerðin