Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir
Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir

Framkvæmdastjóri hönnunar- og áætlanasviðs

Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir (FSRE) óskar eftir að ráða öflugan leiðtoga til að stýra hönnunar- og áætlanasviði. Leitað er að einstaklingi með þekkingu og reynslu af kostnaðaráætlanagerð og hönnunar-, viðhalds- og nýframkvæmdaverkefnum ásamt metnaði og vilja til að leiða nýsköpun, tryggja gæði og stuðla að hagkvæmri nýtingu fjármuna í þágu samfélagsins. Viðkomandi verður hluti af framkvæmdastjórn FSRE.

FSRE annast fasteignir og jarðir ríkisins, öflun húsnæðis og stýrir framkvæmdum við breytingar, endurbætur og nýbyggingar. Stofnunin heldur utan um stærsta fasteignasafn landsins sem samanstendur af 530 þúsund m² húsnæðis í 380 eignum auk um 300 jarða og landsvæða. Jafnframt er unnið að fjölbreyttum fasteignaverkefnum sem snerta flest svið mannlífsins s.s. heilbrigðis- og velferðarmál, menningu, menntun, löggæslu, dómskerfi, náttúru og friðlýst svæði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ábyrgð á daglegum rekstri, mannauði og stefnumótun sviðsins.
  • Yfirumsjón með ferli verkefna frá gerð frumhönnunar, verkhönnunar og áætlanagerðar í samræmi við lög og reglugerðir um skipan opinberra framkvæmda.
  • Umsjón með útboðum á hönnunar- og framkvæmdaverkefnum og samningagerð í samstarfi við hagaðila.
  • Eftirlit og eftirfylgni með tíma- og kostnaðaráætlunum verkefna á hönnunarstigi.
  • Mótun og innleiðing á aðferðafræði við áætlanagerð verkefna.
  • Mótun og innleiðing hönnunarviðmiða og vistvænnar nálgunar.
  • Ábyrgð á nýsköpun og stafrænni þróun sviðsins.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði verk-, tækni- eða byggingarfræði. Framhaldsmenntun er kostur.
  • Reynsla af stjórnun, mannauðsmálum og uppbyggingu öflugrar liðsheildar.
  • Farsæl reynsla af verkefnastýringu, hönnun og áætlanagerð.
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu og þeim reglugerðum sem tengjast starfsemi sviðsins.
  • Reynsla af útboðum, samningagerð og rekstri verksamninga.
  • Þekking á öryggis-, heilsu- og vinnuumhverfismálum, BIM og vistvænni hönnun er kostur.
  • Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar og lausnamiðað viðhorf.
  • Metnaður, frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.

Um FSRE:

Hjá FSRE starfa um 70 einstaklingar með breiða þekkingu á sviði fasteignarekstrar, framkvæmda og eignastýringar. Um er að ræða spennandi vinnustað sem er á fleygiferð inn í framtíðina og boðið er upp á verkefnamiðað vinnuumhverfi og sveigjanlegan vinnutíma. Lögð er áhersla á að styðja starfsfólk FSRE í þekkingaröflun, m.a. í gegnum alþjóðlegt tengslanet.

Umsóknarfrestur er til og með 13. október 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem færð eru rök fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Um fullt starf er að ræða.

FSRE hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511-1225

Auglýsing birt26. september 2025
Umsóknarfrestur13. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ByggingafræðingurPathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Innleiðing ferlaPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar