
Framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs
Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir (FSRE) óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra framkvæmdasviðs. Leitað er að reynslumiklum leiðtoga með umfangsmikla þekkingu á verkframkvæmdum, skýra framtíðarsýn og hæfni til að leiða þróun og eflingu mannauðs. Viðkomandi verður hluti af framkvæmdastjórn FSRE.
FSRE annast fasteignir og jarðir ríkisins, öflun húsnæðis og stýrir framkvæmdum við breytingar, endurbætur og nýbyggingar. Stofnunin heldur utan um stærsta fasteignasafn landsins sem samanstendur af 530 þúsund m² húsnæði í 380 eignum auk um 300 jarða og landsvæða. Jafnframt er unnið að fjölbreyttum fasteignaverkefnum sem snerta flest svið mannlífsins s.s. heilbrigðis- og velferðarmál, menningu, menntun, löggæslu, dómskerfi, náttúru og friðlýst svæði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ábyrgð á daglegum rekstri, mannauði og stefnumótun framkvæmdasviðs.
- Umsjón með viðhalds- og nýframkvæmdum.
- Eftirfylgni með tíma- og kostnaðaráætlunum á verktíma.
- Þátttaka í umbótum og stefnumótandi verkefnum innan FSRE.
- Ábyrgð á nýsköpun og stafrænni þróun sviðsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði verk-, tækni- eða byggingarfræði. Framhaldsmenntun er kostur.
- Farsæl reynsla af stjórnun viðhalds- og verkframkvæmda.
- Reynsla af stjórnun, stefnumótun, mannauðsmálum og uppbyggingu öflugrar liðsheildar.
- Reynsla af innleiðingu faglegrar verkefnastýringar.
- Þekking á opinberri stjórnsýslu og stafrænni þróun er kostur.
- Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar og lausnamiðað viðhorf.
- Metnaður, frumkvæði og skipulagshæfni.
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Um FSRE:
Hjá FSRE starfa um 70 einstaklingar með breiða þekkingu á sviði fasteignarekstrar, framkvæmda og eignastýringar. Um er að ræða spennandi vinnustað sem er á fleygiferð inn í framtíðina og boðið er upp á verkefnamiðað vinnuumhverfi og sveigjanlegan vinnutíma. Lögð er áhersla á að styðja starfsfólk FSRE í þekkingaröflun, m.a. í gegnum alþjóðlegt tengslanet.
Umsóknarfrestur er til og með 13. október 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem færð eru rök fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Um fullt starf er að ræða.
FSRE hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511-1225.













