Forstöðumaður sölu- og viðskiptalausna á Innanlandssviði
Eimskip auglýsir eftir öflugum leiðtoga til að gegna starfi forstöðumanns sölu- og viðskiptalausna á Innanlandssviði Eimskips.
Leitað er að stjórnanda með sterk tengsl við íslenskt atvinnulíf til að leiða teymi í framlínusveit félagsins sem heldur utan um viðskiptasambönd við marga af stærstu viðskiptavinum Eimskips.
Hjá Eimskip innanlands starfar úrvalshópur starfsmanna í fjölbreyttum störfum. Sviðið er leiðandi í innanlandsflutningum og vörudreifingu, vöruhúsa- og frystigeymslustarfsemi. Þá heyrir dótturfyrirtækið Sæferðir einnig undir sviðið og fasteignaumsjón. Á sviðinu starfa tæplega 400 starfsmenn á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið. Lögð er áhersla á jöfn tækifæri í heilbrigðu starfsumhverfi. Eimskip leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu.
- Dagleg stjórnun og rekstur
- Ábyrgð á tengslum og ráðgjöf við viðskiptavini félagsins
- Öflun nýrra viðskiptatengsla og viðskiptasambanda
- Tilboðsgerð, úrvinnsla og eftirfylgni
- Ábyrgð á markaðsmálum sviðsins í samráði við markaðsdeild
- Þróun á verkferlum og tækifærum á markaði
- Tryggja öfluga liðsheild og drifkraft innan deildarinnar
- Eftirfylgni með stefnu og markmiðum sviðsins
- Víðtæk leiðtoga- og stjórnunarreynsla
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Góð enskukunnátta er skilyrði
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
- Öflugt starfsmannafélag sem rekur m.a. orlofshús víðs vegar um landið
- Heilsu- og hamingjupakki fyrir starfsfólk sem inniheldur m.a. heilsuræktarstyrk, sálfræðiþjónustustyrk, samgöngustyrk og fleira
- Gott mötuneyti og matur niðurgreiddur fyrir starfsfólk
- Farsímaáskrift og net heima
- Nútímaleg vinnuaðstaða
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi