Rekstur og fjármál
VEX leitar eftir öflugum einstaklingi til að leiða fjármál og rekstrartengd málefni í vaxandi félagi sem sérhæfir sig í rekstri framtakssjóða.
Starfið krefst reynslu af bókhaldi og reikningshaldi en jafnframt að viðkomandi sé sjálfstæður í starfi, nákvæmur, faglegur og hafi áhuga á að tileinka sér nýja þekkingu.
Hjá VEX starfar reynslumikill hópur starfsmanna sem byggt hefur upp gott orðspor í framtaksfjárfestingum fyrir hönd lífeyrissjóða, tryggingafélaga og einkafjárfesta í óskráðum fyrirtækjum.
Hlutverk skrifstofustjóra felur meðal annars í sér:
· Daglegur rekstur skrifstofu
· Ábyrgða á fjármálum félagsins þ.m.t. bókhaldi og uppgjörum
· Almenn umsjón og rekstur félaga í eignasafni VEX
· Upplýsingagjöf og skýrsluskil til fjárfesta og helstu hagaðila
· Aðstoð við innleiðingu sjálfbærnistefnu VEX og upplýsingagjöf henni tengdri
· Ýmis tilfallandi verkefni sem koma upp í rekstri félagsins
· Háskólamenntun sem nýtist í starfi
· Haldgóð þekking á bókhaldi og reikningsskilum fyrirtækja
· Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli
· Greiðvikni og hæfni til að vinna í teymi
· Sveigjanleiki og aðlögunarhæfni