Vegagerðin
Vegagerðin
Vegagerðin

Deildarstjóri umsjónardeildar á Austursvæði

Hefur þú áhuga á að vinna að verkefnum sem skipta máli fyrir samfélagið ?

Vegagerðin hefur það hlutverk að byggja upp, viðhalda og reka samgöngukerfi ríkisins. Við leitum að deildarstjóra umsjónardeildar á Austursvæði. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starfi í stýringu nýframkvæmda og viðhalds á starfssvæði Vegagerðarinnar á Austursvæði.

Umsjónardeildir svæða hafa umsjón og eftirlit með þeim framkvæmdum sem svæðum eru falin. Í samráði við mannvirkjasvið annast umsjónardeild viðhald bundinna slitlaga, styrkingar og endurbætur ásamt efnisvinnslu á svæðinu. Um er að ræða fullt starf á svæðismiðstöð á Reyðarfirði með möguleika á að sinna starfinu að hluta til í þjónustumiðstöð Vegagerðarinnar í Fellabæ.

Helstu verkefni og ábyrgð

Deildarstjóri leiðir starfsemi umsjónardeildar og sýnir gott fordæmi í öryggismálum. Deildarstjóri hefur yfirsýn yfir stöðu verkefna, framgang þeirra og kostnað. 

  • Yfirumsjón með nýframkvæmdum og öðrum framkvæmdum sem svæðinu eru falin þannig að farið verði eftir útboðslýsingum, stöðlum og verklýsingum
  • Umsjón með framkvæmdum umferðaröryggisaðgerða og viðhaldi varnargarða
  • Gerð viðhaldsáætlana og umsjón með slitlagabanka
  • Yfirumsjón með viðhaldi brúa og varnargarða, áætlanagerð og framkvæmd
  • Umsjón með efnisvinnslu ásamt efniskaupum á svæðinu
  • Mælingar tengdar framkvæmdum, s.s. útsetningar, framkvæmda- og úttektarmælingar og kostnaðareftirlit
  • Undirbúningur og áætlanagerð fyrir þau verkefni sem deildinni eru falin
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Verk- eða tæknifræðingur eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af ámóta störfum er kostur
  • Þekking á landsvæði kostur 
  • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til að leiða teymi
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi
  • Góð öryggisvitund
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
Auglýsing birt15. nóvember 2024
Umsóknarfrestur2. desember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Búðareyri 11, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar