Bjargey
Bjargey

Deildarstjóri á Bjargey, meðferðarheimili í Eyjafirði

Barna- og fjölskyldustofa leitar eftir framsæknum leiðtoga í nýja stöðu deildarstjóra á Bjargey, meðferðarheimili fyrir unglinga. Viðkomandi þarf að hafa góða þekkingu á málefnum barna og ungmenna. Starfsstöð er að Laugalandsskóla í Eyjafjarðarsveit. Starfið heyrir undir forstöðumann Bjargeyjar. Um er að ræða 100% stöðu í dagvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á starfsemi og stjórnun meðferðarheimilisins í samstarfi við forstöðumann.
  • Halda utan um daglegt og faglegt starf heimilisins og vera staðgengill forstöðumanns í hans fjarveru. 
  • Þátttaka í innleiðingu gagnreyndra aðferða í meðferðarstarfi í samstarfi við meðferðarteymi Barna- og fjölskyldustofu.
  • Ábyrgð á meðferðaráætlun, yfirsýn yfir stöðu skjólstæðinga og meðferðarmarkmiðum þeirra.
  • Samskipti við samstarfsaðila og forsjáraðila barna á heimilinu.
  • Stuðningur við starfsfólk, skipulag vakta og umsjón með tímaskráningarkerfi. 
  • Þátttaka í stefnumótun innan meðferðarsviðs stofnunarinnar. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • BA/BS próf sem nýtist í starfi.
  • Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Reynsla af störfum með unglingum með alvarlegan hegðunarvanda og/eða vímuefnavanda og fjölskyldum þeirra.
  • Reynsla af vaktaskipulagningu og skráningu í tímaskráningarkerfi er kostur. 
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf. 
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Skipulagshæfileikar og geta til að hafa yfirsýn og umsjón með verkefnum.
  • Góð íslensku og ensku kunnátta í mæltu og rituðu máli, önnur tungumálakunnátta er kostur.

 

Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Íþróttastyrkur
Auglýsing birt8. nóvember 2024
Umsóknarfrestur18. nóvember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Laugaland 152511, 601 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar