Hreint ehf
Hreint ehf
Hreint ehf

Þjónustustjóri

Þjónustustjóri
Eitt stærsta og öflugasta ræstingafyrirtæki landsins óskar eftir að ráða drífandi Þjónustustjóra vegna aukinna umsvifa og fjölgunar verkefna. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir metnaðarfullan aðila hjá einni virtustu ræstingaþjónustu landsins. Starfstöð Þjónustustjóra er í Kópavogi. Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fylgjast með og meta frammistöðu starfsmanna og veita þeim endurgjöf
  • Setja markmið og vinna að stöðugum umbótum
  • Aðstoð við ráðningu, þjálfun og þróun starfsmanna í ræstingum
  • Tryggja að allar ræstingar fylgi gæðakröfum Svansins
  • Tryggja hagkvæmi í efniskostnaði og annarra auðlinda
 
Önnur verkefni frá Sviðstjóra þjónustusviðs
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Geta til þess að setja sig í spor annara er mikilvæg
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð ásamt mikilli skipulagshæfni
  • Rík þjónustulund og þægilegt viðmót ásamt góðri hæfni í mannlegum samskiptum
  • Íslensku- eða ensku kunnáttu í rituðu og töluðu máli
  • Hæfni til þess að vinna undir álagi og að halda mörgum boltum á lofti í einu
Bílpróf er nauðsynlegt
Annað:
  • Umsækjandi þarf að vera orðinn 25 ára
  • Umsækjandi þarf að skila inn sakavottorði
Auglýsing birt5. nóvember 2024
Umsóknarfrestur17. nóvember 2024
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar