

Brennur þú fyrir þjónustu?
Við leitum að hressum og þjónustulunduðum liðsfélaga í teymi þjónustufulltrúa Heklu. Bæði leitum við að aðila í sumarafleysingar og einnig til framtíðar.
Markmið Heklu er að bjóða ávallt framúrskarandi þjónustu og gegna þjónustufulltrúar okkar þar lykilhlutverki.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavini Heklu
Svörun fyrirspurna
Útlán og móttaka á bílaleigubílum
Önnur verkefni
Framúrskarandi þjónustulund
Jákvætt viðhorf og mikil hæfni í samskiptum
Góð íslensku- og enskukunnátta
Geta til þess leysa krefjandi mál
Góð tölvuþekking
Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg
Þekking og áhugi á bílum er æskileg
Hjá Heklu starfar samhentur hópur fólks. Við bjóðum upp á frábært mötuneyti. Íþróttastyrk ásamt árlegum heilsufarsmælingum. Starfsfólk nýtur afsláttarkjara á vörum og þjónustu fyrirtækisins.













