
Icelandia
Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun.
Undir vörumerki Icelandia starfa:
Almenningsvagnar Kynnisferða
Dive.is
Flybus
Garðaklettur
Hópbifreiðar Kynnisferða
Icelandic Mountain Guides
Reykjavik Excursions
Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.
Activity Iceland hefur boðið upp á sérferðir á breyttum bílum og lúxusferðir.
Almenningsvagnar Kynnisferða eiga 58 strætisvagna og sjá um viðhald og rekstur þeirra. Félagið sinnir akstri á 11 leiðum fyrir Strætó bs á höfuðborgarsvæðinu.
Enterprise Rent-A-Car er stærsta bílaleiga í heimi og starfar hér á landi undir vörumerki Icelandia. Félagið er með um 1.000 bíla í rekstri í langtíma- og skammtímaleigu.
Dive.is sérhæfir sig í köfunar- og snorklferðum í Silfru auk þess að vera fimm stjörnu PADI köfunarskóli.
Flybus býður upp á akstur á milli Reykjavíkur og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
Garðaklettur á og sér um viðhald og rekstur á dráttarbílum ásamt því að sinna vörubílaakstri.
Hópbifreiðar Kynnisferða heldur utan um rekstur hópbifreiða af öllum stærðum.
Icelandic Mountain Guides hafa verið í fararbroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja á sviði afþreyingar, göngu- og fjallaferðum og bjóða meðal annars upp á fjórhjólaferðir, jöklaferðir og styttri og lengri gönguferðir.
Reykjavik Excursions er eitt elsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins og býður upp á dagsferðir í Bláa Lónið, Gullna hringinn, Jökulsárlón, norðurljósa ferðir og margt fleira.
Icelandia leitar að áhugasömu starfsfólki sem nýtir þekkingu og reynslu í daglegum störfum í jákvæðu starfsumhverfi.
Fyrirtækið er ISO 14001 vottað og er það markmið okkar að nálgast náttúruna með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.

Bókari í kostnaðarbókhald - sumarstarf
Ferðaskrifstofa Kynnisferða leitar að bókara í kostnaðarbókhald fyrirtækisins. Um er að ræða ábyrgðarmikið starf hjá stóru fyrirtæki í fjölbreyttum rekstri. Starfið krefst nákvæmni, agaðra vinnubragða og góðrar tölvukunnáttu.
Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg færsla kostnaðarbókhalds, útborganir, útjöfnun og afstemmingar.
- Flokkun, undirbúningur og skipulag gagna sem tengjast bókhaldsvinnu.
- Tilfallandi útreikningar, aðrar afstemmingar.
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf og viðbótarmenntun sem nýtist í starfi eða haldgóð reynsla af vinnu við bókhald.
- Góð almenn tölvukunnátta, öguð vinnubrögð og reglufesta.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
- Góð framkoma, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
Auglýsing birt6. febrúar 2026
Umsóknarfrestur22. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Góð tölvukunnáttaMannleg samskiptiNákvæmniÞjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (7)

Bókari í kostnaðarbókhald - framtíðarstarf
Icelandia

Bílstjóri á hálendisrútuna - sumarstarf
Icelandia

Undirbúningur ferða - sumarstarf
Icelandia

Umsjón lengri ferða - sumarstarf
Icelandia

Bílstjóri á skutlu í Skaftafelli - sumarstarf
Icelandia

Móttaka og afgreiðsla í Skaftafelli - sumarstarf
Icelandia

Jöklaleiðsögumaður - sumarstarf
Icelandia
Sambærileg störf (12)

Bókari í kostnaðarbókhald - framtíðarstarf
Icelandia

Bókari/Bókhaldsfulltrúi – 50% starf hjá Norræna húsinu í Reykjavík
Norrænahúsið

Bókari og skrifstofustjóri hjá Rue de Net – 50% starf, afleysing í eitt ár ! ☀️
Rue de Net

HGbókhald ehf leitar að bókara í 70% starf.
HG bókhald ehf.

Aðalbókari á fjármálasviði Origo
Origo ehf.

Bókari í hagdeild
Samskip

Finance: Various Positions - Accounting Manager, Accounts Payable & Receivable Clerk
The Reykjavik EDITION

Ertu reyndur bókari?
Deloitte

Öflugur bókari óskast til HMS
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Bókari
Eignamiðlun

Viðskiptafræðingur - Bókari
&Pálsson

Bókhald
Hagvangur