Norrænahúsið
Norrænahúsið
Norrænahúsið

Bókari/Bókhaldsfulltrúi – 50% starf hjá Norræna húsinu í Reykjavík

Langar þig að byggja upp dýrmæta reynslu í fjármálum innan lifandi menningarstofnunar með sterka norræna og alþjóðlega tengingu? Norræna húsið í Reykjavík óskar eftir metnaðarfullum og áreiðanlegum bókara/bókhaldsfulltrúa í 50% starf sem hefur áhuga á að vaxa í starfi og taka þátt í fjölbreyttu menningar- og samstarfsumhverfi Norðurlandanna.

Starfið hentar sérstaklega vel þeim sem vilja sameina faglega færni í bókhaldi við áhuga á menningu, skapandi starfsemi og alþjóðlegu samstarfi — hvort sem þú ert snemma á starfsferli eða leitar að traustu starfi samhliða námi eða öðrum verkefnum.

Starfið er fjölbreytt og veitir góða innsýn í rekstur menningarstofnunar. Hér færðu tækifæri til að þróa færni þína, læra inn á norrænt samstarfsumhverfi og taka þátt í starfsemi sem styður við menningu, listir og samtal yfir landamæri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Bókun reikninga og almenna bókhaldsvinnu
  • Launabókhald og launavinnslu
  • Reglubundnar afstemmingar
  • Aðstoð við uppgjör styrkumsókna og verkefna
  • Önnur tilfallandi verkefni á sviði fjármála og reksturs
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, að lágmarki vera vottaður og viðurkenndur bókari
  • Reynsla af sambærilegu starfi (nýleg eða í uppbyggingu er einnig metin)
  • Góð talnaglöggni og nákvæm vinnubrögð
  • Reynsla af DK bókhaldskerfinu er kostur
  • Góð kunnátta í íslensku og einu skandinavísku tungumáli (dönsku, sænsku eða norsku)
  • Hreint sakavottorð

Persónulegir eiginleikar

  • Skipulögð/lagður og sjálfstæð/ur, en óhrædd/ur við að spyrja og læra
  • Áreiðanleg/ur og með góða þjónustulund
  • Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
  • Sýnir áhuga á menningarstarfsemi og starfsemi Norræna hússins
Fríðindi í starfi
  • Niðurgreiddur hádegismatur hjá veitingastað hússins Plantan bistró
  • Ferðastyrkur fyrir bíllausan lífstíl
  • Íþróttastyrkur
  • Símastyrkur
  • Sveigjanlegur vinnutími
Auglýsing birt6. febrúar 2026
Umsóknarfrestur6. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
NorskaNorska
Valkvætt
Meðalhæfni
SænskaSænska
Valkvætt
Meðalhæfni
DanskaDanska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Sæmundargata 11, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.DKPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.LaunavinnslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Viðurkenndur bókariPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar