Icelandia
Icelandia
Icelandia

Bókari í kostnaðarbókhald - framtíðarstarf

Ferðaskrifstofa Kynnisferða leitar að bókara í kostnaðarbókhald fyrirtækisins. Um er að ræða ábyrgðarmikið starf hjá stóru fyrirtæki í fjölbreyttum rekstri. Starfið krefst nákvæmni, agaðra vinnubragða og góðrar tölvukunnáttu.

Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg færsla kostnaðarbókhalds, útborganir, útjöfnun og afstemmingar.
  • Flokkun, undirbúningur og skipulag gagna sem tengjast bókhaldsvinnu.
  • Tilfallandi útreikningar, aðrar afstemmingar.
  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf og viðbótarmenntun sem nýtist í starfi eða haldgóð reynsla af vinnu við bókhald.
  • Góð almenn tölvukunnátta, öguð vinnubrögð og reglufesta.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
  • Góð framkoma, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
Auglýsing birt6. febrúar 2026
Umsóknarfrestur22. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Góð tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar