
Icelandia
Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun.
Undir vörumerki Icelandia starfa:
Almenningsvagnar Kynnisferða
Dive.is
Flybus
Garðaklettur
Hópbifreiðar Kynnisferða
Icelandic Mountain Guides
Reykjavik Excursions
Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.
Activity Iceland hefur boðið upp á sérferðir á breyttum bílum og lúxusferðir.
Almenningsvagnar Kynnisferða eiga 58 strætisvagna og sjá um viðhald og rekstur þeirra. Félagið sinnir akstri á 11 leiðum fyrir Strætó bs á höfuðborgarsvæðinu.
Enterprise Rent-A-Car er stærsta bílaleiga í heimi og starfar hér á landi undir vörumerki Icelandia. Félagið er með um 1.000 bíla í rekstri í langtíma- og skammtímaleigu.
Dive.is sérhæfir sig í köfunar- og snorklferðum í Silfru auk þess að vera fimm stjörnu PADI köfunarskóli.
Flybus býður upp á akstur á milli Reykjavíkur og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
Garðaklettur á og sér um viðhald og rekstur á dráttarbílum ásamt því að sinna vörubílaakstri.
Hópbifreiðar Kynnisferða heldur utan um rekstur hópbifreiða af öllum stærðum.
Icelandic Mountain Guides hafa verið í fararbroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja á sviði afþreyingar, göngu- og fjallaferðum og bjóða meðal annars upp á fjórhjólaferðir, jöklaferðir og styttri og lengri gönguferðir.
Reykjavik Excursions er eitt elsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins og býður upp á dagsferðir í Bláa Lónið, Gullna hringinn, Jökulsárlón, norðurljósa ferðir og margt fleira.
Icelandia leitar að áhugasömu starfsfólki sem nýtir þekkingu og reynslu í daglegum störfum í jákvæðu starfsumhverfi.
Fyrirtækið er ISO 14001 vottað og er það markmið okkar að nálgast náttúruna með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.

Bílstjóri á hálendisrútuna - sumarstarf
Icelandia leitar að bílstjóra með ríka öryggisvitund, reynslu af krefjandi akstri og áhuga á ferðaþjónustu í náttúruperlum hálendisins. Bílstjórar hálendisrútunnar keyra um einhver fegurstu svæði landsins við andköf og aðdáun farþega sinna. Um er að ræða gefandi sumarstarf og unnið er samkvæmt 2-2-3 vaktaskipulagi.
Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Akstur hálendisrútunnar og þjónusta við farþega.
- Umsjón og umhirða bifreiða.
- Vinna eftir umhverfis-, öryggis- og gæðastöðlum fyrirtæksins.
- Umsjón með farangri farþega og öðrum vöruflutningum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af akstri á hálendisvegum og yfir óbrúaðar ár er skilyrði.
- Aukin ökuréttindi D.
- Gilt ökuritakort.
- Hreint sakavottorð.
- Góð íslensku- og/eða enskukunnátta.
- Rík öryggisvitund, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Snyrtimennska og stundvísi.
- Jákvæðni, drifkraftur og sjálfstæð vinnubrögð.
Fríðindi í starfi
- Frítt fæði í ferðum.
- Fjölbreytt verkefni í vaxandi vinnuumhverfi.
- Möguleika á þróun í starfi.
Auglýsing birt3. febrúar 2026
Umsóknarfrestur28. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaValkvætt
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Vatnsmýrarvegur 10, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Akstur á hálendiDrifkrafturHreint sakavottorðJákvæðniMannleg samskiptiMeirapróf DÖryggisvitundSjálfstæð vinnubrögðSnyrtimennskaStundvísiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)
Sambærileg störf (12)

Sumarstörf á Selfossi
Eimskip

Steypubílstjóri á Selfossi
Steypustöðin

Sumarstörf hjá Coca-Cola á Íslandi 2026
Coca-Cola á Íslandi

Kranabílstjóri / Kranamaður
Jón og Margeir ehf.

Fagkaup óskar eftir vönum bílstjóra með meiraprófsréttindi
Fagkaup ehf

Hópferðabílstjóri
Tanni ferðaþjónusta ehf.

Afgreiðslu- og lagerstarfsfólk
Kvarnir ehf

Skagafjörður/Sauðárkrókur: Meiraprófsbílstjóri óskast á ruslabíl / C driver on garbage truck
Íslenska gámafélagið ehf.

Bílstjóri við heildsöludreifingu í Rvk.
Auðflutt ehf.

Vinna á holræsabíl / Sewer truck operator
Stíflutækni

Ökuleiðsögumaður – Sumarstarf 2026
Arctic Adventures

Ferðaþjónusta fatlaðra - Akstur
Teitur