

Atmonia leitar að verkefnisstjóra
Atmonia er nýsköpunarfyrirtæki á sviði djúptækni.
Við leitum að lausnamiðaðri manneskju í hlutastarf verkefnastjóra og aðstoðarmanns framkvæmdastjóra. Verkefnin verða fjölbreytt. Helstu verkefni felast meðal annars í að hafa umsjón með og samhæfa tímalínur verkefna, auðvelda samskipti milli hagsmunaaðila og tryggja að áfangar verkefnia náist. Halda utan um verkferla og tryggja samræmi við markmið fyrirtækisins. Starfið krefst náins samstarfs við teymismeðlimi til að viðhalda skilvirkni verkefna og að tryggja að tímaáætlun sé fylgt.
Hæfni í verkefnastjórnun, þar á meðal áætlanagerð og skipulagningu er krafa. Reynsla af samhæfingu evrópskra verkefna eins og Horizon Europe og Evrópska nýsköpunarráðsins (EIC) er hentug en ekki krafa. Sérþekking í úttekt- og endurskoðunarferlum til að tryggja að gæða- og frammistöðustöðlum sé fylgt kemur sér vel. Þekking á sviði gæðastjórnunar er einnig hentug. Samskipta- og samvinnuhæfni til samskipta við teymi Atmonia en einnig við alþjóðlega samstarfsaðila er mikilvæg.
Starfið er auglýst sem hlutastarf með möguleika á að auka hlutfall starfs og miklum möguleikum á vexti í starfi samhliða vexti félagsins.
Verkefnastjórnun rannsóknar og þróunarverkefna, (samskipti við samstarfsaðila í verkefnum, skýrsluskrif, bókhald og skipulagning viðburða.)
Samstarf við bókara um bókhald og utanumhald um bókhald
Aðstoða framkvæmdastjóra
Samskipti við samstarfsaðila, bæði innanlands sem alþjóðlega.
Utanumhald um samfélagsmiðla félagsins
BSc eða BA próf sem hentar starfi, hentugt ef umsækjandi er með grunn í efna. eðlis eða verkfræði, en ekki krafa.
Menntun í verkefnastjórnun er mikilvæg.
Sveigjanleiki í starfi, möguleiki á að vinna að hluta til að heiman.
Enska
Íslenska










