

Verkefnastjóri byggingarframkvæmda og tæknimála / Project Manager Construction & Technical Ops
Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum verkefnastjóra til að leiða og samhæfa byggingarframkvæmdir og tæknileg málefni við uppbyggingu hátækni framleiðslustöðvar á Norðurlandi. Starfið er lykilhlutverk í metnaðarfullu verkefni þar sem byggingarframkvæmdir, tæknileg hönnun, rekstrarundirbúningur og samvinna við fjölbreytta hagsmunaaðila mætast.
Þú vinnur náið með stjórnendum, verkfræðingum, hönnuðum, verktökum og birgjum og berð ábyrgð á að tryggja að verkefnið skili sér á réttum tíma, innan fjárhags og í samræmi við tæknilegar kröfur.
-
Yfirumsjón með og verkefnastjórnun byggingarframkvæmda og tengdra tæknimála
-
Áætlanagerð, verk-, tíma- og kostnaðaráætlanir og eftirfylgni
-
Samhæfing hönnunar, tæknilegra lausna og framkvæmda
-
Samskipti og samvinna við verkfræðistofur, hönnuði, verktaka og birgja
-
Rýni verkgagna og þátttaka í mótun tæknilegra úrlausna
-
Umsjón með innkaupum og framvindu verkefna
-
Uppfærsla fjárhagsáætlunar í samræmi við framvindu verkefna og skýrslugjöf
-
Viðhald verkefnaskjala og fylgni við reglur, staðla og leyfi
-
Stuðningur við rekstrar- og gangsetningarundirbúning stöðvarinnar
-
Menntun sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði, byggingartæknifræði, byggingarfræði, rafmagnstæknifræði, iðnaðarverkfræði eða verkefnastjórnun. Einnig kemur til greina einstaklingur með meistararéttindi og mikla starfsreynslu.
-
Að lágmarki 5 ára reynsla af verkefnastjórnun, umsjón byggingarframkvæmda, tæknimálum eða sambærilegu
-
Þekking á DMM eða sambærilegu viðhaldskerfi er kostur
-
Reynsla af samstarfi við utanaðkomandi aðila og stjórnun flókinna verkefna
-
Sterk skipulagsfærni, frumkvæði og fagleg vinnubrögð
-
Góð samskipta- og samstarfshæfni
-
Gott vald á ensku er skilyrði; íslenska er kostur
-
Starfið er á Norðausturlandi og mun framtíðar starfsstöð vera í nýju hátækni-framleiðsluhúsnæði félagsins á Þeistareykjum
Við bjóðum
-
Tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu stórs og metnaðarfulls hátækniverkefnis
-
Mikla ábyrgð og raunveruleg áhrif á framvindu og niðurstöðu verkefnis
-
Samkeppnishæf laun í samræmi við reynslu og hæfni
-
Starf í metnaðarfullu, sveigjanlegu og lausnamiðuðu teymi
Enska
Íslenska










