
Arion banki
Starfsfólk Arion banka er kjarninn í starfsemi bankans og kappkostar bankinn að búa vel að starfsfólki sínu.
Arion banki er lifandi vinnustaður þar sem starfsumhverfið einkennist af fagmennsku, framsækni, umhyggju og tryggð
Hjá Arion banka starfa um 900 manns, þar af eru 65% konur og 35% karlar. Kynjaskipting á meðal stjórnenda bankans er fremur jöfn og sama gildir um aldursdreifingu innan bankans en meðalaldur starfsfólks Arion banka er 42 ár.
Fjölmargt starfsfólk hefur sýnt bankanum og forverum hans mikla tryggð og eru dæmi um að starfsfólk sé með meira en 40 ára starfsaldur. Meðal starfsaldur hjá Arion banka er tíu ár.

Verkefnastjóri á upplýsingatæknisvið
Við leitum að verkefnastjóra á upplýsingatæknisviði Arion banka. Viðkomandi mun tilheyra teyminu Verkefnastjórnun og innkaup og halda utan um margbreytileg og spennandi verkefni ásamt því að vinna með fjölbreyttum og þverfaglegum hópi fólks.
Við leitum að einstaklingi með mikið frumkvæði, góða færni í mannlegum samskiptum og skýra nálgun á verkefnastjórnun.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Gerð verkáætlana, verkefnaskjölun og utanumhald stærri vöruþróunar-, innkaupa- og tækniverkefna
- Stuðla að góðum samskiptum og samræmingu hagsmunaaðila og teyma
- Veita reglulega upplýsingagjöf um stöðu verkefna, m.a. til stýrihópa og stjórnenda
- Þátttaka í þróun á innkaupa- og verkefnaskipulagi á upplýsingatæknisviði
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg
- Reynsla af verkefnastjórnun, formleg verkefnastjórnunarvottun er kostur
- Reynsla af utanumhaldi stærri innkaupa- eða innleiðingarverkefna er kostur
- Jákvætt viðmót og góð færni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
- Brennandi áhugi á stafrænni tækni og að læra nýja hluti
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, drifkraftur og góð skipulagshæfni
- Reynsla af því að koma fram og halda kynningar og/eða vinnustofur
- Gott vald á rituðu og mæltu máli, bæði íslensku og ensku
Auglýsing birt4. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
DrifkrafturFrumkvæðiSjálfstæð vinnubrögðVerkefnastjórnunVerkefnastjórnun í upplýsingatækni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í þjónustu og upplifun
APRÓ

Viðskiptastjóri orku og grænna lausna
Íslandsstofa

Verkefnastjóri stafrænnar þróunar
Intellecta

Skipulagsfulltrúi
Sveitarfélagið Hornafjörður

Tæknilegur verkefnastjóri
Farice ehf

Verkefnastjóri stærri uppbyggingarverkefna
Umhverfis- og skipulagssvið

Verkefnastjóri launa- og kjaramála
Háskólinn á Akureyri

Verkstjóri á Útflutnings- og hráefnissviði óskast
Íslenska gámafélagið ehf.

Sumarstarfsmaður hjá Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins
Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins

Verkefnastjóri fasteigna og bifreiða hjá Húsasmiðjunni
Húsasmiðjan

Verkefnastjóri stefnu
Byko

Verkefnastjóri miðlunar
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra