Air Atlanta Icelandic
Air Atlanta Icelandic
Air Atlanta Icelandic

Airworthiness Directives Engineer

Verkfræðideild (e. Engineering) Air Atlanta leitar að öflugum aðila til að ganga til liðs við hópinn og halda áfram spennandi uppbyggingu deildarinnar.

Í verkfræðideildinni starfar samheldinn hópur sem sinnir eftirliti með viðhaldi og lofthæfi flugvélaflotans í samráði við flugvélaframleiðendur og aðra samstarfaðila. Í dag er Air Atlanta með Boeing 747 og Boeing 777 í rekstri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirferð og utanumhald á ADs (e. Airworthiness Directives) nótum
  • Fylgjast með útgáfum á nýjum ADs og SBs (e. Service Bulletin) nótum
  • Uppsetning á ADs og SBs nótum
  • Útbúa viðhaldsleiðbeiningar
  • Innleiðing á nýjum flugvélum með tilliti til ADs og SBs
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Próf í flugvirkjun, verkfræði eða sterkur tæknilegur bakgrunnur
  • Reynsla í viðhaldi flugvéla er kostur
  • Mjög góð ensku- og tölvukunnátta
  • Öguð og vönduð vinnubrögð
  • Frumkvæði og sjálfstæði
  • Sterk öryggisvitund
Auglýsing birt18. júlí 2024
Umsóknarfrestur5. ágúst 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaFramúrskarandi
Staðsetning
Hlíðasmári 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar