

Sérfræðingur í lífeyris- og vátryggingaáhættu
Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða talnaglöggan og nákvæman sérfræðing til þess að sinna greiningu og eftirliti með lífeyris- og vátryggingaáhættu í deild fjárhagslegra áhættuþátta á sviði varúðareftirlits.
Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem tækifæri gefst til þess að öðlast djúpa þekkingu á banka-, lífeyris- og vátryggingamarkaði auk þess að geta haft áhrif á hvernig eftirliti með aðilum á fjármálamarkaði er háttað.
Svið varúðareftirlits hefur eftirlit með starfsemi fyrirtækja á fjármála- og vátryggingamarkaði og starfsemi lífeyrissjóða. Deild fjárhagslegra áhættuþátta hefur meðal annars yfirsýn yfir þróun lausafjár og fjármögnunaráhættu, útlána- og samþjöppunaráhættu, líkana- og eiginfjáráhættu, lífeyristryggingaáhættu, vátryggingaáhættu, markaðsáhættu, eiginfjárgerningum og framsetningu á eiginfjár- og gjaldþolskröfum eftirlitsskyldra aðila. Þá tekur svið varúðareftirlits þátt í mati á kerfisáhættu, í samvinnu við fjármálastöðugleikasvið bankans.
- Greiningar og eftirlit með lífeyristrygginga- og vátryggingaáhættu, þ.m.t. lágmarkstryggingavernd lífeyrissjóða og eftirlit með aðferðafræði og forsendum við að besta mat vátryggingaskuldar
- Eftirlit með gjaldþolskröfum vátryggingafélaga
- Þróun á aðferðafræði Seðlabankans við mat á lífeyris- og vátryggingaáhættu
- Endurbætur og þróun greiningarlíkana og framsetning á niðurstöðum með greiningartækjum
- Þátttaka í vettvangsathugunum sem tengjast lífeyrissjóðum og vátryggingafélögum
- Þátttaka í norrænu og alþjóðlegu samstarfi, m.a. hjá Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnuninni (EIOPA)
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. verkfræði, stærðfræði, tölfræði eða sambærilegt
- Þekking á lífeyris- og vátryggingamarkaði er kostur
- Rík greiningarhæfni er nauðsynleg
- Reynsla af gagnagreiningu og framsetningu niðurstaðna æskileg
- Þekking á forritun í R, Python eða sambærilegu er kostur
- Þekking á gagnagrunnum og SQL er kostur
- Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna með öðrum
- Frumkvæði, öguð vinnubrögð, ábyrgð, sjálfstæði og metnaður í starfi
- Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku
Íslenska
Enska










