Sérfræðingur í útlánaáhættu
Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða talnaglöggan og nákvæman sérfræðing til þess að sinna greiningu og eftirliti með útlánaáhættu fjármálafyrirtækja í deild fjárhagslegra áhættuþátta á sviði varúðareftirlits.
Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem tækifæri gefst til þess að öðlast djúpa þekkingu á banka-, lífeyris- og vátryggingamarkaði auk þess að geta haft áhrif á hvernig eftirliti með aðilum á fjármálamarkaði er háttað.
Svið varúðareftirlits hefur eftirlit með starfsemi fyrirtækja á fjármála- og vátryggingamarkaði og starfsemi lífeyrissjóða. Deild fjárhagslegra áhættuþátta hefur meðal annars yfirsýn yfir þróun lausafjár og fjármögnunaráhættu, útlána- og samþjöppunaráhættu, líkana- og eiginfjáráhættu, lífeyristryggingaáhættu, vátryggingaáhættu, markaðsáhættu, eiginfjárgerningum og framsetningu á eiginfjár- og gjaldþolskröfum eftirlitsskyldra aðila. Þá tekur svið varúðareftirlits þátt í mati á kerfisáhættu, í samvinnu við fjármálastöðugleikasvið bankans.
- Greining og eftirlit með útlánaáhættu fjármálafyrirtækja
- Eftirlit með virðismati útlána og áhættustýringarferlum
- Þróun á aðferðafræði Seðlabankans við mat á útlánaáhættu
- Framkvæmd og yfirferð á áhættumati í könnunar- og matsferli (SREP)
- Þátttaka í vettvangsathugunum sem tengjast útlánaáhættu
- Þátttaka í norrænu og alþjóðlegu samstarfi, m.a. hjá Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni (EBA)
- Framhaldsnám á háskólastigi sem nýtist í starfi
- Viðeigandi þekking og reynsla af störfum á fjármálamarkaði
- Rík greiningarhæfni er nauðsynleg
- Þekking á útlánastarfsemi og mati á virði útlána er æskileg
- Færni við greiningu ársreikninga er kostur
- Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna með öðrum
- Frumkvæði, öguð vinnubrögð, ábyrgð, sjálfstæði og metnaður í starfi
- Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku