Aðstoðarmaður sjúkraþjálfara á Landspítala við Hringbraut
Viltu vinna með skemmtilegu fólki og vera hluti af góðri liðsheild?
Við leitum eftir liðsmanni til að starfa sem aðstoðarmaður sjúkraþjálfara. Starfshlutfall er 100% og unnið er í dagvinnu. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Í sjúkraþjálfun við Hringbraut starfa um 20 einstaklingar sem sinna fjölbreyttri og sérhæfðri endurhæfingu m.a. sjúklinga með hjartasjúkdóma, krabbamein, sjúklinga af barnadeildum, sjúklinga eftir skurðaðgerð auk almennrar endurhæfingar eftir veikindi. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða aðlögun.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.