Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður í skammtímadvöl - Hnotuberg

Ertu að leita þér að skemmtilegu og fjölbreyttu hlutastarfi?

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga og áhugasama starfsmenn á skammtímadvöl fyrir fötluð ungmenn, staðsett í Setbergshverfi. Viðkomandi þurfa að geta hafið störf 1. ágúst 2024.

Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar. Í boði er fjölbreytt og spennandi starf í vaktavinnu. Starfshlutfall er 30% og viðkomandi þurfa að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja þjónustunotendur til ýmissa tómstunda
  • Almenn heimilisstörf
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Líkamleg geta til að sinna verkefnum á vinnustað

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Hrönn Harðardóttir forstöðuþroskaþjálfi í síma: 565-2545, netfang: hronnha@hafnarfjordur.is

Umsóknarfrestur er til og með 19. maí 2024

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing stofnuð2. maí 2024
Umsóknarfrestur19. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Hnotuberg 19, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar