Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Þroskaþjálfi – Heilsuleikskólinn Hamravellir

Heilsuleikskólinn Hamravellir óskar eftir að ráða metnaðarfullan og öflugan þroskaþjálfa í 100% starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í haust.

Heilsuleikskólinn Hamravellir er staðsettur innarlega á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Hamravellir er heilsuleikskóli þar sem áhersla er lögð á hollt mataræði, útiveru, hreyfingu og sköpun. Einkunnarorð leikskólans eru hreyfing, sköpun og vellíðan

Fáist ekki þroskaþjálfi til starfsins, kemur til greina að ráða einstakling með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinnur að uppeldi og menntun barns/barna með sérþarfir þar með talið að skipuleggja sérkennslu viðkomandi í samvinnu við sérkennslustjóra og deildastjóra.
  • Gerir skriflegar einstaklingsnámskrár fyrir það barn/börn sem hann er með í stuðning
  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn þess barns/barna sem hann er með í stuðning
  • Er leiðbeinandi fyrir annað starfsfólk varðandi stuðning við nemendur með sérþarfir
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Önnur verkefni sem sérkennslustjóri og eða yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi sem slíkur
  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Reynsla af teymisvinnu æskileg
  • Færni í samskiptum og samstarfshæfni
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

Fáist ekki þroskaþjálfi til starfa, kemur til greina að ráða einstakling með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi eða með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Helga Jakobsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, helgaj@hafnarfjordur.is eða í síma 424-4640

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Þroskaþjálfafélag Íslands.

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Umsóknarfrestur er til og með 17. maí 2024.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Auglýsing stofnuð2. maí 2024
Umsóknarfrestur17. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Hvannavellir 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar