A4 - Vöruhúsastjóri
Við leitum eftir jákvæðum, skipulögðum og lausnamiðuðum vöruhúsastjóra í vöruhúsið okkar að Köllunarklettsvegi 10. Starfið er fjölbreytt, krefjandi og skemmtilegt og felur m.a. í sér að halda utan um daglegan rekstur og mönnun vöruhúss, móttaka og afgreiðsla á vörum sem og samskipti við innri og ytri birgja.
Um er að ræða fullt starf og er vinnutíminn alla virka daga frá kl. 08:00 til 17:00.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Verkefni og ábyrgð
- Ábyrgur fyrir fjárhagslegum rekstri vöruhúss
- Ábyrgur fyrir starfsmannamálum og mönnun
- Ábyrgur fyrir afgreiðslu pantana, dreifingu og móttöku vara
- Ábyrgur fyrir birgðahaldi og gæðamálum
- Ábyrgur fyrir samskiptum við innri og ytri viðskiptavini
- Eftirlit með tækjum og bifreiðum
- Umsjón með öryggismál í höfuðstöðvum
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af stýringu vöruhúsa eða lagera
- Reynsla af stjórnun og að byggja upp öfluga liðsheild
- Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Umbótasinnaður og reynsla af LEAN
- Jákvætt og lausnamiðað viðhorf
- Skipulögð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
- Þekking á vöruhúsakerfum og handskönnum
- Góð almenn tölvukunnátta
- Lyftararéttindi og meirapróf kostur
- Góð íslensku og ensku kunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veitir framkvæmdastjóri vörusviðs, Lárus, í gegnum netfangið larus@a4.is.
Umsóknarfrestur er til og með 28 nóvember 2024
A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði húsgagna, skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. Hjá fyrirtækinu starfa um 140 manns.