

Leikskólinn Klappir: Leikskólakennari eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
Leikskólinn Klappir óskar eftir að ráða leikskólakennara eða starfsmann með aðra háskólamenntun (B.Ed, Bs eða B.A) sem nýtist í starfi í 80 til 100% ótímabundna stöðu. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 4. ágúst eða eftir samkomulagi.
Í Klöppum leggjum við áherslu á að skapa hlýlegt og hvetjandi lærdómssamfélag þar sem öllum líður vel, finna að þau tilheyra og fá tækifæri til að vaxa og þroskast.
Einkunnarorð okkar – gleði, traust og virðing – endurspeglast í daglegu starfi og samskiptum.
Klappir er sjö deilda leikskóli fyrir allt að 145 börn. Starfið einkennist starfið af námi í gegnum leik og sköpun, þar sem áhugi og forvitni barnanna fær að njóta sín. Sérstök áhersla er lögð á læsi og stærðfræði, ásamt því að efla sjálfstæði, frumkvæði og virka þátttöku barna.
Við störfum eftir uppeldisstefnunni SMT – skólafærni og leggjum áherslu á jákvæð og uppbyggileg samskipti, skýr viðmið og öruggt námsumhverfi. Klappir er jafnframt Réttindaskóli UNICEF og Heilsueflandi leikskóli, auk þess að vera Grænfánaskóli þar sem unnið er markvisst að sjálfbærni og umhverfismennt.
Sýn okkar er: faglegur skóli, starfsánægja og fagleg forysta með gleði, traust og virðingu að leiðarljósi.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://klappir.karellen.is/
Næsti yfirmaður er deildarstjóri.
- Vinnur að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
- Þátttaka í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi skólans og þróunarverkefnum undir stjórn deildarstjóra og skólastjóra.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna. Situr fundi sem haldnir eru á vegum leikskólans.
- Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast skólanum í samráði við deildarstjóra. Situr kennarafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi skólans.
- Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
- Umsækjandi þarf að hafa lokið leikskólakennaranámi, öðru kennaranámi sem veitir leyfisbréf til kennslu eða annarri háskólamenntun (BS, BA, B.Ed.) sem nýtist í starfi skólans.
- Reynsla af starfi í leikskóla er kostur.
- Reynsla af því að nota SMT í skólastarfi er kostur.
- Mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, geti lesið í umhverfi sitt, sýni frumkvæði, sjálfstæði, ábyrgð og sveigjanleika í starfi.
- Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
- Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli er skilyrði.
- Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum og sveigjanlegum einstaklingi sem býr yfir metnaði við mótun skólastarfsins
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Icelandic
























