

Deildarstjóri hjá leikskólanum Álfheimum
Leikskólinn Álfheimar auglýsir eftir deildarstjórum frá og með 5.ágúst 2026.
Leitað er að deildarstjórum með leiðtogahæfileika sem eru tilbúnir að taka þátt í að leiða
áfram og þróa metnaðarfullt og faglegt starf leikskólans þar sem samvinna, traust og
gleði ríkir. Í leikskólanum Álfheimum er virkt lærdómssamfélag og teymisvinna en ásamt
því er leikskólinn einnig grænfánaleikskóli sem leggur áherlsu á útinám.
Deildarstjóri er faglegur leiðtogi og situr í stjórnendateymi leikskólans. Hann starfar
samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu
Sveitarfélagsins Árborgar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla og
öðrum lögum er við eiga.
Um er að ræða gefandi og skemmtilegt starf í góðu starfsumhverfi barna og kennara.
Áherslur Álfheima eru á leik barna, heilsueflingu, jákvæð og uppbyggjandi samskipti og
umhyggjusamt námsumhverfi. Einkunnarorð leikskólans er Virðing, hlýja og traust.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá
sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og
árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins
að leiðarljósi.
- Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan
deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar - Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða
sérkennslu eftir þörfum. - Fylgist með að deildin sé búin nauðsynlegum uppeldis- og kennslugögnum í
samvinnu við leikskólastjóra. - Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna og stjórnun
deildarinnar sem yfirmaður felur honum. - Ber ábyrgð á að foreldrar/forráðamenn fái upplýsingar um þroska og líðan barnsins
og þá starfsemi er fram fer á deildinni. - Situr foreldrafundi, starfsmannafundi, deildarstjórafundi og aðra fundi er
yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans. - Tekur þátt í gerð skólanámskrár, ársáætlunar, mati á starfsemi leikskólans og
þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra. - Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna.
- Leyfisbréf leikskólakennara.
- Reynsla, hæfni og áhugi í starfi með börnum.
- Reynsla og/eða menntun í stjórnun æskileg.
- Reynsla í leikskólastarfi æskileg.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
- Færni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Góð íslenskukunnátta æskileg.
Icelandic










