Árbæjarskóli
Árbæjarskóli

Heimilisfræðikennari óskast til starfa í Árbæjarskóla

Heimilisfræðikennari óskast til starfa við Árbæjarskóla næsta skólaár, haustið 2026.

Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 750 talsins og er skólinn safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru um 112 og er starfsandi mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar áhugasamt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.

Helstu verkefni og ábyrgð

Heimilisfræðikennsla nemenda í samráði við skólastjórnendur og fagteymi.

Þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.

Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra.

Menntunar- og hæfniskröfur

Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.

Sérmenntun í heimilisfræði er æskileg.

Reynsla af kennslu barna og unglinga er æskileg.

Hæfni í samskiptum.

Faglegur metnaður.

Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.

Framúrskarandi íslenskukunnátta er skilyrði.

Advertisement published21. April 2026
Application deadline5. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Rofabær 34, 110 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags