Landakotsskóli
Landakotsskóli
Landakotsskóli

Deildarstjóri í Landakotsskóla

Landakotsskóli óskar eftir að ráða metnaðarfullan og framsýnan deildarstjóra til starfa við almenna grunnskóladeild skólans. Um er að ræða lykilstöðu í metnaðarfullu skólasamfélagi þar sem lögð er áhersla á skapandi skólastarf, fagmennsku og framúrskarandi menntun.

Starfið felur í sér um 70% stjórnun og 30% kennslu. Deildarstjóri er hluti af stjórnendateymi skólans, tekur þátt í daglegri stjórnun og veitir faglega forystu í námi og kennslu.

Um Landakotsskóla

Landakotsskóli byggir á sterkum grunni og ríkri hefð en horfir jafnframt til framtíðar með markvissri skólaþróun og nýsköpun. Skólinn er sjálfstætt starfandi grunnskóli sem lýtur sérstakri stjórn og er fyrir 1.–10. bekk, auk deildar fimm ára barna og frístundaheimilis.

Í skólanum eru um 360 nemendur í tveimur deildum:

  • almenn deild sem fylgir Aðalnámskrá og þar sem kennt er á íslensku

  • alþjóðleg deild sem fylgir Cambridge námskrá og þar sem kennt er á ensku

Við skólann starfa um 50 kennarar og 30 aðrir starfsmenn. Skólasamfélagið er fjölbreytt, alþjóðlegt og einkennist af góðum starfsanda, metnaði og sterkri liðsheild.

Lögð er rík áhersla á listkennslu og skapandi starf þvert á faggreinar, samhliða öflugri kennslu í kjarnagreinunum íslensku, tungumálum og stærðfræði. Samskipti, samvinna, sköpun, framtíðarhugsun og vellíðan eru leiðarljós í skólastarfinu. Markmið skólans er að nemendur nái að vaxa og dafna í skólanum, verði undirbúnir til að ákvarða eigin framtíð og vera virkir þátttakendur í samfélaginu.

Helstu verkefni og ábyrgð

 

  • Veita faglega forystu í námi, kennsluháttum og skólaþróun  

  • Bera ábyrgð á skipulagi og framkvæmd kennslu innan deildar  

  • Hafa umsjón með faglegum ákvæðum aðalnámskrár  

  • Leiða þróun og nýbreytni í kennsluháttum 

  • Leiða verkefnastjórnun og umbótastarf í skólanum 

  • Stuðla að jákvæðum skólabrag og sinna agamálum  

  • Annast samskipti við nemendur, kennara og foreldra 

  • Taka þátt í stefnumótun og þróun skólastarfs 

  • Leiða samstarf kennara og halda utan um stigsfundi  

  • Styðja við starfsfólk og efla góðan starfsanda  

  • Vinna náið með skólastjóra og öðrum stjórnendum  

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og gilt leyfisbréf til kennslu  

  • Reynsla af kennslu á grunnskólastigi er nauðsynleg 

  • Reynsla og menntun af stjórnunar- eða þróunarstarfi er æskileg  

  • Leikni í fjölbreyttum kennsluaðferðum og góð tæknikunnátta  

  • Þekking á leiðsagnarnámi er mikilvæg 

  • Hæfni til að leiða teymi og efla samstarf  

  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð  

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og fagmennska  

  • Áhugi á þróun og eflingu skólastarfs  

  • Hreint sakarvottorð 

  • Góð íslensku- og enskukunnátta  

Fríðindi í starfi

Við bjóðum  

  • Fjölbreytt starf í skapandi og metnaðarfullu umhverfi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, samstarf og stöðuga þróun 

  • Öflugt alþjóðlegt samfélag fagfólks á sviði menntunar 

  • Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á skólaþróun 

Advertisement published21. April 2026
Application deadline5. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Öldugata 23, 101 Reykjavík
Túngata 15, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DeterminationPathCreated with Sketch.Public relationsPathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Public speakingPathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.CreativityPathCreated with Sketch.BrandingPathCreated with Sketch.Implementing proceduresPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Public administrationPathCreated with Sketch.Phone communicationPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.First aidPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Project managementPathCreated with Sketch.IT project managementPathCreated with Sketch.Customer servicePathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags