
Brúarásskóli
Brúarásskóli er samrekinn grunn- og leikskóli í Jökulsárhlíð á Fljótsdalshéraði. Í skólanum er lögð áhersla á samþættingu námsgreina í gegnum fjölbreytt þemaverkefni sem dreifast yfir veturinn. Mikið er lagt upp úr tjáningu og framsetningu verkefna sem nemendur ljúka. Verkgreinum er gert hátt undir höfði í skólanum og boðið upp á fjölbreyttar valgreinar fyrir nemendur í 6.-10 bekk. Skólinn leggur auk þess ríka áherslu á útivist og hreyfingu en góður íþróttasalur er í skólanum og auk þess sparkvöllur og ærslabelgur sem nýtast nemendum vel.

Deildarstjóri og leikskólakennari óskast til starfa við Brúarásskóla
Auglýst er eftir deildarstjóra og leikskólakennara næsta skólaár við Brúarásskóla. Starfshlutfall er að lágmarki 85% en möguleiki er á hærra stöðuhlutfalli.
Brúarásskóli er samrekinn grunn- og leikskóli í Jökulsárhlíð á Fljótsdalshéraði. Í leikskólanum er lögð áhersla á faglegt starf, útivist og hreyfingu.
Ef ekki fást kennarar í störfin verður skoðað að ráða aðila með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinanda.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu.
- Taka virkan þátt í mótun skólastarfsins með velferð nemenda að leiðarljósi.
- Önnur tilfallandi verkefni sem falla til í leikskólastarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun eða leyfisbréf kennara, eða sambærileg uppeldismenntun sem getur nýst í starfi leikskóla.
- Áhugi á að starfa með börnum.
- Góð hæfni til samvinnu með börnum og fullorðnum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi.
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
Möguleiki er að leigja íbúðarhúsnæði á staðnum af sveitarfélaginu Múlaþingi.
Advertisement published21. April 2026
Application deadline5. May 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Brúarás-Grunnskóli-íþ , 701 Egilsstaðir
Type of work
Skills
ProactiveTeam work
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Íslenskukennari á unglingastigi
Landakotsskóli

Sviðsstjóri náms- og kennsluþjónustu
Háskólinn á Akureyri

Deildarstjóri í Landakotsskóla
Landakotsskóli

Kennari á yngstastigi í Árbæjarskóla frá hausti 2026
Árbæjarskóli

Heimilisfræðikennari óskast til starfa í Árbæjarskóla
Árbæjarskóli

Umsjónarkennari í 3. - 4. bekk skólaárið 2026-27
Smáraskóli

Deildarstjóri í Uglukletti
Borgarbyggð

Leikskólakennari hjá leikskólanum Álfheimum
Leikskólinn Álfheimar, Selfossi

Sérkennslustjóri hjá leikskólanum Álfheimum
Leikskólinn Álfheimar, Selfossi

Leikskólinn Klappir: Leikskólakennari eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
Akureyri

Deildarstjóri hjá leikskólanum Álfheimum
Leikskólinn Álfheimar, Selfossi

Kennarastöður við Flóaskóla
Flóaskóli