Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Deildarstjóri í Uglukletti

Leikskólinn Ugluklettur Borgarnesi auglýsir stöðu deildarstjóra lausa til umsóknar.

Í Uglukletti byggir leikskólastarfið á hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði þar sem meðal annars er horft til hugmynda Mihaly Csikszentmihalyi um flæði auk kenninga um sjálfræði barna. Gildi Uglukletts eru leikur, virðing, gleði og leggjum við áherslu á að allir fái að njóta sín og horfum á einstaklinginn út frá styrkeikum.

Nánari upplýsingar eru á heimasíðu skólans http://ugluklettur.leikskolinn.is/.

Deildarstjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og stefnu sveitafélagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni
  • Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar
  • Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá
  • Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu
  • Sterk fagleg sýn
  • Reynsla og hæfni í starfi
  • Jákvæðni, frumkvæði, áhugi og metnaður
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta skylirði.
Fríðindi í starfi
  • 50% afsláttur af leikskólagjöldum
  • 36 klst. vinnuvika
  • heilsuræktarstyrkur
Advertisement published21. April 2026
Application deadline6. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Ugluklettur 1, 310 Borgarnes
Type of work
Professions
Job Tags