Álfhólsskóli
Álfhólsskóli
Álfhólsskóli

Deildarstjóri í upplýsingatækni

Álfhólsskóli leitar eftir deildarstjóra í upplýsingatækni.

Deildarstjóri í upplýsingatækni er faglegur leiðtogi í upplýsingatækni í kennslu og skólastarfi og veitir kennslufræðilega- og tæknilega ráðgjöf og stuðning.

Deilarstjóri vinnur undir stjórn skólastjóra og í nánu samstarfi við starfsmenn skóla og menntasviðs Kópavogsbæjar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Faglegur leiðtogi innan skóla í að stuðla að framþróun og nýbreytni í kennsluaðferðum og kennsluháttum og nýtingu upplýsingatækni í skólastarfi.
  • Veitir kennurum kennslufræðilega aðstoð er varðar skipulag og undirbúning kennslu sem lýtur að upplýsingatækni.
  • Ábyrgð á uppsetningu, viðhaldi og eftirliti með tölvum, jaðar- og hugbúnaði nemenda og kennara í grunnskólum.
  • Veitir starfsfólki tæknilega ráðgjöf og stuðning.
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennsluréttindi og kennslureynsla í grunnskólastigi.
  • Reynsla og þekking á sviði upplýsingatækni í skólastarfi æskileg.
  • Framhaldsnám á sviði upplýsingatækni í skólastarfi eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi æskilegt.
  • Grunnþekking í tækni, á sviði vélbúnaðar og hugbúnaðar, æskileg.
  • Skipulags- og samstarfshæfileikar.
  • Faglegur metnaður og brennandi áhugi á þróun upplýsingatækni í skólastarfi.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi, lausnamiðað og jákvætt hugarfar.
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

Advertisement published16. April 2026
Application deadline30. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Álfhólsvegur 120, 200 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags