

Grunnskólakennarar & leikskólakennari við Grunnskóla Drangsness
Óskað er eftir að ráða tvo grunnskólakennara og leikskólakennara við Grunnskóla Drangsness fyrir skólaárið 2026/2027
- Grunnskólakennara á yngra stig í Grunnskólanum í 100% starfshlutfall.
- Grunnskólakennara á eldra stig í Grunnskólanum 100% starfshlutfall.
- Leikskólakennara í leikskólann í 100% starfshlutfall
Grunnskóli Drangsness er fámennur skóli þar sem margir árgangar eru í samkennslu og áhersla lögð á einstaklingsmiðað nám. Skólinn leggur áherslu á gott samstarf við grenndarsamfélagið og nágrannaskólana auk útikennslu, ræktun og sköpun.
Í Grunnskóla Drangsness verða um 10 nemendur næsta skólaár á aldrinum 9 – 15 ára, að auki er verið að stofna samrekin leikskóla undir sama þaki þar sem 5 - 7 nemendur verða næsta skólaár.
Tveir kennarar auk skólastjóra sinna kennslu í grunnskóla. Tveir starfsmenn eru í leikskólanum, deildarstjóri og leikskólakennari.
Starfsfólk þarf að búa yfir sveigjanleika, lausnarmiðaðri hugsun og að geta kennt á báðum skólastigum í grunn- og leikskólanum.
- Leyfisbréf kennara (fylgi með umsókn)
- Reynsla af kennslu í grunn- og leikskóla er kostur
- Metnaður og einlægur áhugi á að vinna með börnum og unglingum á faglegan, fjölbreyttan og skapandi hátt
- Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sveigjanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Skapandi hugsun og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Stytting vinnuvikunnar
Icelandic










