Akureyri
Akureyri
Akureyri

Leikskólinn Hagasteinn: Leikskólakennarar eða aðrir háskólamenntaðir

Leikskólinn Hagasteinn á Akureyri óskar eftir að ráða kennara eða starfsmenn með aðra háskólamenntun (B.Ed, BS eða BA) sem nýtist í starfi skólans í 80 til 100% stöður. Um er að ræða ótímabundin störf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf frá 1. ágúst 2026.

Í leikskólanum Hagasteini verður lögð áhersla á Jákvæðan aga, hæglæti, barnasáttmálann, umhverfismennt og vellíðan með það að markmiði að skapa gott náms - og starfsumhverfi.

Þar sem um nýjan leikskóla er að ræða mun starfsfólk taka þátt í að byggja upp starf skólans frá grunni og því er um einstakt tækifæri að ræða fyrir metnaðarfulla einstaklinga.

Sýn okkar er: faglegur skóli, starfsánægja og fagleg forysta með gleði, traust og virðingu að leiðarljósi.

Næsti yfirmaður er deildarstjóri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi skólans og þróunarverkefnum undir stjórn deildarstjóra og skólastjóra.
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna. Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum skólans.
  • Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast skólanum í samráði við deildarstjóra. Situr kennarafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi skólans.
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjendur þurfa að hafa lokið leikskólakennaranámi, öðru kennaranámi sem veitir leyfisbréf til kennslu eða annarri háskólamenntun (BS, BA, B.Ed.) sem nýtist í starfi skólans.
  • Reynsla af starfi í leikskóla er kostur.
  • Mikilvægt er að viðkomandi sé tilbúinn að takast á við skemmtilegt starf með börnum og fullorðnum.
  • Mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, geti lesið í umhverfi sitt, sýni frumkvæði, sjálfstæði, ábyrgð og sveigjanleika í starfi.
  • Þekking á agastefnu skólans, Jákvæðum aga, er æskileg en þó ekki skilyrði.
  • Almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
  • Gott vald á íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli er nauðsynleg.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Advertisement published17. April 2026
Application deadline10. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Naustagata
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags