Akureyri
Akureyri
Akureyri

Leikskólinn Hagasteinn: Matráður

Leikskólinn Hagasteinn óskar eftir að ráða matráð í 100% stöðu. Um ótímabundna ráðningu er að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst 2026.

Löng starfslýsing

Leikskólinn Hagasteinn óskar eftir að ráða matráð í 100% stöðu. Um ótímabundna ráðningu er að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst 2026.

Leitað er að jákvæðum, metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi.

Í leikskólanum Hagasteini verður lögð áhersla á Jákvæðan aga, hæglæti, barnasáttmálann, umhverfismennt og vellíðan með það að markmiði að skapa gott náms - og starfsumhverfi.

Þar sem um nýjan leikskóla er að ræða mun starfsfólk taka þátt í að byggja upp starf skólans frá grunni og því er um einstakt tækifæri að ræða fyrir metnaðarfulla einstaklinga.

Sýn okkar er: faglegur skóli, starfsánægja og fagleg forysta með gleði, traust og virðingu að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkstjórn í eldhúsi skólans.
  • Matreiðsla og umsjón með framreiðslu fæðis fyrir nemendur og starfsfólk.
  • Ber ábyrgð á meðhöndlun og frágangi matvæla í eldhúsi.
  • Tryggir hreinlæti og öryggi í eldhúsinu í samvinnu við skólastjórnendur.
  • Sér um gerð matseðla og að fylgja sameiginlegum matseðlum skólaeldhúsa á Akureyri.
  • Ber ábyrgð á að útbúa sérfæði fyrir nemendur vegna mataróþols og annarra sérþarfa.
  • Ber ábyrgð á öllum innkaupum fyrir eldhús, samskiptum við birgja og gætir að hagkvæmni í rekstri.
  • Frágangur og dagleg þrif í eldhúsi.
  • Fylgjast með tækjum og búnaði.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af starfi í mötuneyti/eldhúsi skilyrði.
  • Matartækninám er æskilegt.
  • Almenn tölvuþekking.
  • Skipulagshæfni, ábyrgðarkennd, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Stundvísi, reglusemi og færni í samskiptum.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
  • Gerð er krafa um vammleysi s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Advertisement published17. April 2026
Application deadline10. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Geislagata 9, 600 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.CreativityPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.CookPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.InnovativePathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.MeticulousnessPathCreated with Sketch.Customer servicePathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags