Kokkarnir Veisluþjónusta
Kokkarnir Veisluþjónusta

Matreiðslumaður/meistari

Aðalverkefni er veislueldhús. Undirbúa veislur og fara með á áfangastað. Ásamt þessu er unnið líka í hádegisverðarþjónustunni þegar þarf. Starfar náið með yfirkokk og aðstoðaryfirkokk.

Reykleysi er skilyrði

Unnið er á vöktum en megnið er á dagvinnutíma. Viðkomandi á alltaf aðrahverja helgi/laugardag.

Við leitum að metnaðarfullum og skapandi matreiðslumanni til starfa á líflegu og vaxandi veislueldhúsi. Starfið felur í sér undirbúning og framreiðslu gæða rétta, þátttöku í þróun matseðils og að tryggja að allar vinnureglur um hreinlæti og öryggi séu virtar. Við leggjum mikla áherslu á fagmennsku, nákvæmni og góða samvinnu í eldhúsi.

Helstu verkefni:

  • Undirbúningur og matreiðsla samkvæmt uppskriftum og stöðlum.
  • Samvinna við teymi og þátttaka í daglegum rekstri eldhúss
  • Viðhald á hreinlæti og skipulagi vinnusvæðis

Hæfniskröfur:

  • Menntun og reynsla í matreiðslu
  • Áhugi á matargerð og nýsköpun
  • Hæfni til að vinna undir álagi
  • Jákvæðni og góð samskiptahæfni

Við bjóðum upp á fjölbreytt og spennandi starf í góðu starfsumhverfi, tækifæri til að þróast í starfi og samkeppnishæf kjör. Ef þú hefur brennandi áhuga á matargerð og vilt vera hluti af öflugu teymi, hvetjum við þig til að sækja um.

Menntunar- og hæfniskröfur

Fagbréf

Advertisement published15. April 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Flatahraun 27, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags