Akureyri
Akureyri
Akureyri

Leikskólinn Tröllaborgir: Aðstoðarmatráður

Leikskólinn Tröllaborgir óskar eftir að ráða aðstoðarmatráð til starfa. Um er að ræða 87,5% ótímabundið starf með vinnutímann frá kl. 8:30 til 15:30. Æskileg starfsbyrjun væri um miðjan júní eða eftir samkomulagi.

Lífsleikni í leikskóla eru áherslur Tröllaborga og byggir sú hugmyndafræði á kenningum ýmissa fræðimanna sem snúa að mannrækt og siðferðilegu gildismati í samfélagi manna og þeirri trú að efla og styrkja hið góða í hverjum einstaklingi bæði börnum og fullorðnum. Lögð er áhersla á að túlka lífsleiknina sem hugsjón sem þurfi að flæða yfir allt starf frekar en sem námsgrein innan skólans. Einnig er lögð áhersla á læsi og jóga.

Einkunnarorð skólans eru „Hugur- hjarta - hönd“.

Skólinn hefur tvær starfsstöðvar; að Tröllagili 29 og í Árholti Háhlíð 1.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://trollaborgir.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoðar matráð við gerð og framreiðslu matar fyrir nemendur og starfsfólk skv. skilgreindu dagsskipulagi.
  • Annast frágang og dagleg þrif í eldhúsi samkvæmt þrifaáætlun.
  • Sér um uppvask.
  • Sér um þvotta innan leikskólans.
  • Gengur frá borðbúnaði eftir máltíðir.
  • Aðstoðar í þeim verkefnum sem til falla í eldhúsi, s.s. að færa upp matinn, sjá um meðlæti, setja á vagna, tekur fullan þátt í matseld eftir þörfum o.þ.h.
  • Sinnir öðrum þeim verkefnum sem yfirmaður felur honum og falla undir starfssvið hans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þekking á gerð og framreiðslu matar.
  • Almenn tölvuþekking er nauðsynleg.
  • Skipulag, framtakssemi og dugnaður.
  • Stundvísi, reglusemi og færni í samskiptum.
  • Kunnátta í skyndihjálp.
  • Snyrtimennska.
  • Góð íslensku- og/eða enskukunnátta er skilyrði.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Advertisement published21. April 2026
Application deadline1. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Tröllagil 29, 603 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.General computer knowledgePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.NeatnessPathCreated with Sketch.Punctual
Professions
Job Tags