

Leikskólinn Tröllaborgir: Matráður
Leikskólinn Tröllaborgir óskar eftir að ráða matráð til starfa. Um er að ræða 100% ótímabundið starf með vinnutímann frá kl. 7 til 15. Æskileg starfsbyrjun væri í júní eða eftir samkomulagi.
Lífsleikni í leikskóla eru áherslur Tröllaborga og byggir sú hugmyndafræði á kenningum ýmissa fræðimanna sem snúa að mannrækt og siðferðilegu gildismati í samfélagi manna og þeirri trú að efla og styrkja hið góða í hverjum einstaklingi bæði börnum og fullorðnum. Lögð er áhersla á að túlka lífsleiknina sem hugsjón sem þurfi að flæða yfir allt starf frekar en sem námsgrein innan skólans. Einnig er lögð áhersla á læsi og jóga.
Einkunnarorð skólans eru „Hugur- hjarta - hönd“.
Skólinn hefur tvær starfsstöðvar; að Tröllagili 29 og í Árholti Háhlíð 1.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://trollaborgir.is
- Hefur umsjón með daglegum rekstri eldhúss.
- Er verkstjóri aðstoðarmatráða í eldhúsi leikskóla.
- Annast matseld, bakstur, sérfæði nemenda og sér um framfylgd matseðla.
- Sér um innkaup, birgðavörslu og frágang á vörum fyrir eldhús skólans, s.s. matvöru, borðbúnað og hreinlætisvörum fyrir skólann.
- Fylgist með tækjum og búnaði og lætur vita ef þörf er að endurnýja eða lagfæra.
- Annast matreiðslu og hefur umsjón með framreiðslu fæðis fyrir nemendur og starfsfólk.
- Annast frágang í mötuneyti og dagleg þrif í eldhúsi samkvæmt þrifaáætlun, gólfþrif eru undanskilinn.
- Sér um morgunmat, hádegisverð og síðdegishressingu fyrir nemendur.
- Sér um þvotta, frágang og heldur þvottahúsi og þvottavélum snyrtilegum.
- Sinnir öðrum þeim verkefnum sem yfirmaður felur honum og falla innan starfssviðs hans.
- Matartækninám.
- Þekking á gerð og framreiðslu matar.
- Reynsla af starfi í mötuneyti.
- Þekking á ráðleggingum Lýðheilsustöðvar varðandi skólamáltíðir er æskileg.
- Almenn tölvuþekking er nauðsynleg.
- Þarf að vera skipulagður, geta sýnt frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Stundvísi, reglusemi og færni í samskiptum.
- Kunnátta í skyndihjálp.
- Snyrtimennska.
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði.
- Góð enskukunnátta er æskileg.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Icelandic
English
























