Akureyri
Akureyri
Akureyri

Glerárskóli: Skólaliði

Í Glerárskóla er laus til umsóknar staða skólaliða.

Um er að ræða ótímabundna stöðu um 80% með vinnutíma frá 7:50-14:00.

Glerárskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði jákvæðs aga og Olweusar. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar úti- og grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám og teymisvinnu. Glerárskóli Erasmus+ vottaður skóli. Glerárskóli er hnetulaus skóli.

Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is

Leitað er að hugmyndaríkum einstaklingi sem á auðvelt með að sýna sveigjanleika, hafa frumkvæði, sem hefur mikinn metnað, á auðvelt með öll samskipti og sem leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.

Starf skólaliða er fjölbreytt og felur m.a. í sér gæslu og aðstoð við nemendur í starfi og leik á vegum skólans, aðstoð í mötuneyti, ræstingar og margt fleira. Skólaliðar starfa undir verkstjórn umsjónarmanns húsa og í samstarfi við alla aðra starfsmenn skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka nemenda og umsjón með þeim á og fyrir/eftir skólatíma
  • Frímínútnagæsla innan -og utanhúss
  • Almenn gæsla og eftirlit með nemendum í skóla og frístund
  • Eftirlit með húsnæði og búnaði
  • Afgreiðsla, umsjón og gæsla í matar- og kaffitímum
  • Tilsjón og aðstoð við nemendur vegna margvíslegra verkefna
  • Umsjón með kaffistofu starfsfólks og starfsmannaaðstöðu skólans
  • Ræsting samkvæmt starfsáætlun
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Áhugi á að starfa með börnum á grunnskólaaldri og leikni í samskiptum við börn og fullorðna
  • Æskilegt er að umsækjandi sé með reynslu af störfum með börnum
  • Æskilegt er að umsækjandi sé með reynslu af þrifum
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni, stundvísi og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og ábyrgð
  • Samviskusemi og reglusemi
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Hæfni til að fylgja fyrirframgefnu skipulagi
  • Áhugi á að taka þátt í þróun skólastarfs og að taka að sér fjölbreytt verkefni
  • Ýmiskonar hæfileikar, menntun og/eða þekking sem getur auðgað skólastarfið
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samræmist starfinu
Advertisement published20. April 2026
Application deadline4. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Geislagata 9, 600 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Customer servicePathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags