Læknar með vilyrði fyrir tímabundnu lækningaleyfi frá embætti landlæknis
Laus eru til umsóknar störf fyrir lækna sem hafa sótt um starfsleyfi til embætti landlæknis og fengið afgreiðslu sem kveður á um að læknir geti fengið tímabundið lækningaleyfi til að ljúka aðlögunartíma sem læknir á Íslandi undir handleiðslu læknis með ótakmarkað starfsleyfi sbr. 13. gr. reglugerðar nr. 483/2023.
Landspítali mun skipuleggja slíkan slíkan 6 mánaða aðlögunartíma skv. gæðaskjali Landspítala um umsagnarráðningar lækna, með skilgreindan handleiðara á viðkomandi starfsstöð skv. tilmælum embættis landlæknis. Upphaf starfs getur verið á tímabilinu nóvember 2025-janúar 2026 og er ráðningartímabil 6 mánuðir. Í lok tímans myndi handleiðari skila ítarlegri skýrslu til embættis landlæknis eins og kveðið er á um í fyrirmælum frá embættinu.
Education and requirements
Hafa lokið læknisfræðimenntun og fengið umsögn frá embætti landlæknis þar sem mælt er með aðlögunartímabili með starfi á heilbrigðisstofnun
Geta hafið störf á tímabilinu nóvember 2025-janúar 2026
Hæfni í mannlegum samskiptum og þverfaglegu samstarfi
Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
Þekking á íslenskum lögum og reglugerðum er varða störf lækna á Íslandi
Þekking á uppbyggingu heilbrigðiskerfisins á Íslandi
Lágmarkskunnátta í íslensku (umsækjandi þarf að skila skírteini sem sýnir fram á B2 tungumálafærni)
Responsibilities
Tekur þátt í teymisvinnu og göngudeildarvinnu, eftir því sem við á
Aðstoðar við sjúkdómsgreiningu, meðferð og eftirfylgd sjúklinga, undir stjórn sérnámslækna og sérfræðilækna og á ábyrgð yfirlæknis viðkomandi deildar eða einingar
Aðstoðar við að veita sjúklingum bestu mögulegu læknisþjónustu sem tök eru á að veita hverju sinni
Vinnur skv. gæðaskjali Landspítala um umsagnarráðningar lækna
Skráir í sjúkraskrá undir leiðsögn lækna og fer eftir reglum um skráningu lækna í sjúkraskrá