Símenntun Háskólans á Akureyri
Símenntun Háskólans á Akureyri
Símenntun Háskólans á Akureyri

Markaðssetning á samfélagsmiðlum

Námskeiðið Markaðssetning á samfélagsmiðlum (Facebook & Instagram Marketing) hentar vel fyrir þau sem starfa í markaðsmálum eða eru að byrja að leita sér þekkingar til að komast enn frekar inn í markaðsmál, sérstaklega gott fyrir minni fyrirtæki og einyrkja.

Námskeiðið er afskaplega hagnýtt, þú gerir verkefni út frá þínu fyrirtæki/vinnu/hugmynd sem hjálpar þér að ná árangri. Námskeiðið spannar tvo mánuði, er kennt á ensku og er í 100% fjarnámi. John Greene kennari námskeiðsins hjálpar þér að setja upp markaðsstefnu og efnið í kringum hana. Kennslan fer fram með blönduðu sniði; fyrirlestrar, rafrænir fundir og verkefni. Þú færð alvöru endurgjöf á þína vinnu í gegnum námskeiðið og stendur uppi með vel gerða markaðsáætlun og verkfærin til þess að keyra hana í gegn og ná árangri.

Á námskeiðinu er farið ítarlega yfir META Business Suite, hvernig auglýsingar á Facebook og Instagram virka, hvaða og hvernig auglýsingar ná sem mestum árangri. 

Hefst
15. jan. 2025
Tegund
Fjarnám
Verð
95.000 kr.
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar