

Innri úttektir
Fyrir hverja:
Umsjónarmenn gæðastjórnunarkerfa, núverandi og verðandi innri úttektarmenn. Námskeiðið er sérsniðið að þörfum byggingariðnaðarins en getur vel nýst þeim sem starfa í öðrum geirum.
Námskeiðið nýtist þeim sem starfa eftir vottuðum kerfum eða kerfum sem byggð eru upp miðað ISO stjórnunarstaðla (ISO 9001, 14001 osfrv.).
Markmið:
Að þátttakendur öðlist færni og tól til að framkvæma árangursríkar innri úttektir, greina frávik og umbótatækifæri og fylgja niðurstöðum eftir þannig að þær skili raunverulegu virði fyrir reksturinn.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Innri úttektaráætlanir – stuttlega farið yfir kröfur til innri úttektaráætlana og hvað ber að hafa í huga. Hvernig fáum við sem mest útúr innri úttektum.
- Undirbúningur og gerð gátlista.
- Framkvæmd: Spurningatækni, viðtöl, söfnun og skráning sönnunargagna.
- Úrvinnsla: Skilgreining frávika og umbótatækifæra og skýrslugerð.
- Eftirfylgni: Rótargreining og umbótaverkefni.
Að loknu á nemandi að:
- Skilja tilgang og ferli innri úttekta
- Geta framkvæmt innri úttekt frá A til Ö; undirbúið og framkvæmt, skráð skýrslu, skilgreint og skráð frávik og fylgt eftir niðurstöðum.
Annað:
Innri úttektir eru eitt albesta tólið sem fylgir því að vera með vottað gæðakerfi. Þær gefa innri úttektarmönnum tækifæri til að kynnast og rýna önnur verkefni og/eða ferla fyrirtækisins en menn eru að vinna í dagsdaglega og eru frábær leið til að koma auga á tækifæri til umbóta og skapa umræður um þau. Í innri úttektum skiptir lykilmáli að ferlið í kringum úttektirnar og skýrslugerð sé eins einföld og hægt er og að halda fókus á aðalatriðum þannig að ferlið verði ekki íþyngjandi og skili sem mestum árangri.