Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Grunnnámskeið í þjónustu

Námskeiðinu er ætlað að skerpa vitund þjónustufólks á muninum á afgreiðslu og þjónustu ásamt því að auka söluvitund og þörf á skipulagi. Á námskeiðinu er farið yfir fullt af grunnþáttum þjónustu ásamt helstu atriðum sem skipta máli til að allir séu að vinna eftir sama áttavita. Á námskeiðinu er farið yfir hversvegna við seljum eitthvað en ekki bara eitthvað ásamt því að skerpa á vitund þjóna um hversu miklu máli undirbúningur skiptir. Farið er yfir skipulag er varðar hópa og hvernig best er að bera sig að varðandi nálgun og þjónustu við hina mismunandi hópa á veitingahúsum.

Fyrir hverja:

Nýtt eða óreynt þjónustufólk í veitinga- og þjónustugeiranum, sem og starfsfólk sem vill styrkja grunninn í faglegri þjónustu.

Markmið:

Að þátttakendur skilji muninn á afgreiðslu og þjónustu, efli söluvitund sína og öðlist sameiginlegan grunn í undirbúningi, skipulagi og faglegum vinnubrögðum.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Grunnþætti góðrar þjónustu og muninn á afgreiðslu og þjónustu
  • Sameiginleg vinnubrögð og gildi í þjónustu
  • Söluvitund og tilgang virkrar sölu
  • Mikilvægi undirbúnings og skipulags
  • Framkomu, ásýnd og flæði þjónustunnar
  • Nálgun og þjónustu við ólíka hópa á veitingastöðum

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Geta útskýrt muninn á afgreiðslu og þjónustu
  • Skilja tilgang og gildi virkrar sölu
  • Geta undirbúið sig faglega fyrir þjónustu
  • Geta unnið eftir sameiginlegum þjónustuviðmiðum
  • Geta veitt skipulagða og markvissa þjónustu með tilliti til ólíkra þarfa hópa
Hefst
27. okt. 2026
Tegund
Staðnám
Tímalengd
1 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar